Erlent

Sæll, hún er hætt með þér

Flestir kannast við það að hafa grátið eða valdið táraflóði við sambandsslit elskenda. Sumir bara treysta sér ekki til þess að horfast í augu við elskuna sína og segja að allt sé búið. Þýskur maður hefur tekið að sér að gera það, gegn 4000 króna greiðslu.

Bernd Dressler segist hafa bundið enda á ein 200 sambönd á síðustu ellefu mánuðum. Hann býður einnig upp á stutt námskeið fyrir þá sem vilja segja einhverjum upp, en vita ekki hvernig þeir eiga að fara að því. Dressler segir að sér hafi aldrei verið boðið upp á kaffi, í vinnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×