Erlent

Skaut gísl og stytti sér svo aldur

Umsátri lögreglunnar í Houston í Texas um Johnson-geimferðamiðstöð NASA lauk í nótt með að gíslatökumaðurinn sem þar var innandyra skaut annan gísl sinn til bana og stytti sér svo aldur. Lögreglunni barst tilkynning um að vopnaður maður væri innandyra og að byssuskot hefðu heyrst. Þegar viðræður við manninn voru í þann mund að hefjast heyrðust frekari skothvellir. Þá réðust sérsveitarmenn til inngöngu og fundu líkin tvö auk hins gíslsins sem var bundinn á höndum og fótum. Maðurinn er sagður hafa unnið sem verktaki fyrir NASA en ekki er vitað um ástæðu verknaðar hans í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×