Erlent

Castro að hressast

Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, átti í gær klukkustundarlangan fund með háttsettum kínverskum erindreka í Havana í gær. Castro hefur ekki sést opinberlega í níu mánuði og um tíma var óttast að hann væri við dauðans dyr. Kúbverskir fjölmiðlar hafa sýnt myndir af fundinum þar sem Castro sést á íþróttagalla að ræða við erindrekann. Fundurinn í gær sýnir að þessi aldni leiðtogi er farinn að taka að sér einhverjar stjórnarathafnir á ný en á síðasta ári lét hann völdin í hendur bróður sínum Raúl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×