Erlent

Þriðjungur búinn að kjósa

Kjörsókn hefur verið óvenju mikil það sem af er degi í Frakklandi en fyrri umferð forsetakosninga í landinu fer fram í dag. Flest bendir til að þau Nicolas Sarkozy og Segolene Royal komist áfram, fjöldi óákveðinna gæti þó sett strik í reikninginn.

Kjörstaðir voru opnaðir stundvíslega klukkan átta í morgun að staðartíma en íbúar franskra yfirráðasvæða erlendis greiddu hins vegar atkvæði í gær. Tveimur klukkustundum síðar höfðu 31 prósent kjósenda greitt atkvæði og þarf að fara aftur til ársins 1981 til að finna dæmi um jafn mikla kjörsókn í landinu. Til samanburðar hafði aðeins fimmtungur greitt atkvæði um þetta leyti dags í fyrri umferðinni fyrir fimm árum.

Mikil spenna ríkir fyrir þessa fyrri umferð kosninganna en síðustu skoðanakannanir bentu til að þau Nicolas Sarkozy, frambjóðandi íhaldsmanna, og Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista, fengju hér um bil jafn mikið fylgi og kæmust í aðra umferð. Nú fyrir helgi var hátt í þriðjungur hinna 44,5 milljóna kjósenda hins vegar enn óákveðinn og því er ekki loku fyrir það skotið að miðjumaðurinn Francois Bayrou eða jafnvel þjóðernissinninn Jean Marie Le Pen geti skotist upp á milli þeirra. Krafa um breytingar hefur sett svip sinn á kosningabaráttuna enda hefur landinu verið stjórnað í tólf ár af Jacques Chirac. Sarkozy hefur lagt áherslu á efnahagsumbætur og átak gegn glæpum en Royal hefur sett jafnréttis- og velferðarmál á oddinn og lofað að sameina þjóðina á ný.

Kjörstöðum verður lokað klukkan sex að íslenskum tíma og er búist við að fyrstu tölur verði kynntar örskömmu síðar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálfsjö sýnum við beint frá París þar sem okkar maður færir okkur nýjustu tíðindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×