Erlent

Sarkozy leiðir enn

Nicolas Sarkozy leiðir enn í skoðanakönnunum.
Nicolas Sarkozy leiðir enn í skoðanakönnunum. MYND/AP

Samkvæmt nýjustu könnunum í Frakklandi heldur Nicolas Sarkozy, forsetaframbjóðandi hægri manna, 2 stiga forskoti á Segolene Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista. Munurinn var ívið minni en í síðustu skoðanakönnun en þá var hann 3 stig. Sarkozy og Royal munu takast á um forsetaembætti Frakklands á sunnudaginn kemur.

Í fyrstu umferð forsetakosninganna, sem fram fór þann 22. apríl síðastliðinn, var Sarkozy efstur og Royal í öðru sæti. Talið er að stuðningsmenn Francois Bayrou, sem lenti í þriðja sæti, eigi eftir að skipta sköpum á sunnudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×