Erlent

Felldu upplýsingafulltrúa al-Kaída í Írak

Bandaríski herinn í Írak skýrði frá því í dag að þeir hefðu fellt upplýsingafulltrúa al-Kaída í Írak. Talsmaður hersins sagði að hann hefði verið viðriðinn mannránið á bandarísku blaðakonunni Jill Carroll og fleiri útlendingum.

Carroll var haldið í tvo mánuði áður en henni var sleppt. Muharib abdul Latif al-Jubouri var felldur í bardögum norður af Bagdad á þriðjudaginn var. Talsmaður hersins sagði þetta mikilvægan áfanga. Herinn bar kennsl á al-Jubouri með DNA prófun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×