Erlent

Barist í Karachi

Guðjón Helgason skrifar

Vel á þriðja tug manna hafa fallið í átökum stjórnarandstæðinga og stuðningamanna ríkisstjórnarinnar í Karachi í Pakistan í dag. Upp úr sauð skömmu eftir að umdeildur dómari kom til borgarinnar til að funda með andstæðingum Musharrafs forseta. Dómaranum var vikið tímabundið úr starfi í vikunni og vakti það miklar reiði.

Stríðandi fylkingar skiptust á skotum á götum Karachi í dag og hafa minnst 30 fallið í valinn og nærri hundrað særst. Stuðningmenn flokks Pervez Musharrafs forseta hafa skipts á skotum við liðsmenn í flokki Benazirs Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra. Einkarekna sjónvarpsstöðin Aja varð fyrir árásum í bardögunum í dag og þurftu starfsmenn að leita skjóls frá byssukúlum.

Upp úr sauð í dag þegar Iftikhar Muhammad Chaudhry, fyrrveandi yfirdómari, kom til Karachi til að ávarpa mótmælafund stjórnarandstæðinga. Chaudhry var vikið úr starfi í vikunni vegna ásakana um að hann hefði misbeitt valdi sínu. Stjórnarandstæðingar segja Musharraf forseta hafa viljað skipta honum út fyrir leiðitamari lögfræðingi í dómarasætið. Þannig verði ekki reynt að stöðva áform hans um að bjóða sig fram í þriðja sinn en samkvæmt stjórnarskrá landsins má forseti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil.

Chaudhry komst ekki á mótmælafundinn í dag þar sem vegir til og frá flugvellinum í Karachi voru lokaðir vegna átakanna. Stjórnarandstæðingar hafa jafnvel leitt að því líkum að stuðningsmenn forsetans hafi efnt til ófriðarins til þess að hefta för Chaudhry. Hann mun umkringdur lífvörðum og lögfræðingum sínum enda talið víst að Musharraf hafi fyrirskipað handtöku hans.

Musharraf hefur ekki ljáð máls á því að lýsa yfir neyðarástandi í landinu vegna átakanna sem eru þau hatrömmustu í lengri tíma. Á fundi stuðningsmanna sinna í Islamabad bað hann landa sína að halda ró sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×