Erlent

Átök blossa upp á Gaza

Jónas Haraldsson skrifar
Fylgismenn Fatah taka þátt í jarðarför Baha Abu Jarab, foringja Fatah sem myrtur var fyrir helgina, á laugardaginn var.
Fylgismenn Fatah taka þátt í jarðarför Baha Abu Jarab, foringja Fatah sem myrtur var fyrir helgina, á laugardaginn var.
Átök blossuðu upp á ný á Gaza svæðinu í nótt aðeins nokkrum klukkustundum eftir stríðandi fylkingar sömdu um vopnahlé.

Talið er að tveir hafi látið lífið og að minnsta kosti tíu manns særst í nýjustu átökum Hamas og Fatah hreyfinganna. Vopnahléi hafði verið komið á í gærkvöldi fyrir tilstuðlan erindreka frá Egyptalandi en allt kom fyrir ekki. Átökin hafa nú staðið í tvo sólarhringa.

Þau hófust þegar að einn af leiðtogum Fatah hreyfingarinnar var myrtur í umsátri fyrir helgina. Herskáir Fatah menn kenndu Hamas um ódæðið en því neita Hamas samtökin. Stuttu seinna áttu átök sér stað og voru flestir þeir sem særðust í þeim tengdir Hamas.

Átökin eru þau mestu síðan fylkingarnar tvær komu sér saman um að mynda þjóðstjórn í Palestínu í mars síðastliðnum. Stjórnin biðlaði í dag til fylkinganna um að hafa stjórn á vopnuðum meðlimum sínum. Átökin hafa líka aukið á efasaemdir um að fylkingarnar tvær geti unnið saman í stjórn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×