Erlent

Bin Laden hefur hægt um sig

Óli Tynes skrifar
Gulbuddin Hekmatyar.
Gulbuddin Hekmatyar.

Afganski stríðsherrann Gulbuddin Hekmatyar segir að Osama bin Laden sé enn á lífi en hafi hægt um sig. Myndband með Hekmatyar var sýnt á arabiskum sjónvarpsstöðvum í gær. Þar sagði hann meðal annars að bin Laden líði betur ef hann hafi sig ekki í frammi. Hekmatyar er fyrrverandi forsætisráðherra Afganistans og leiddi baráttuna gegn innrásarher Rússa á sínum tíma.

Hekmatyar var þá í nokkrum metum á vesturlöndum og naut hernaðaraðstoðar frá Bandaríkjunum. Ronald Reagan forseti skrifaði honum meðal annars persónulegt bréf sem hófst á orðunum; "Kæri Gulbuddin."

En allt er í heiminum hverfult. Nú hafa Bandaríkjamann lagt milljónir dollara til höfuðs þessum vini Reagans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×