Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð 31. ágúst 2010 18:45
Allt útlit er fyrir að Hreiðar Már Sigurðsson, Kristján Arason og fleiri yfirmenn í Kaupþingi sleppi undan persónulegri ábyrgð vegna hlutabréfakaupa þar sem eignarhaldsfélög þeirra utan um bréfin voru stofnuð nógu snemma til að erfitt verði að rifta flutningnum. Búast má við að öðrum yfirmönnum sem stofnuðu félög sín síðar verði stefnt í haust náist ekki samkomulag um greiðslu. Nokkrir starfsmenn Kaupþings færðu skuldir sínar við bankann vegna hlutabréfakaupa úr persónulegri eigu í einkahlutafélög. Nær einu veðin fyrir skuldunum voru bréfin sjálf. Slitastjórnin hefur undanfarið unnið að því að rifta þessum ráðstöfunum að því er fram kom í tilkynningu í vor. Samkvæmt gjaldþrotalögunum er erfitt að rifta flutningi yfir í einkahlutafélög ef flutningurinn átti sér stað meira en sex mánuðum fyrir þrot. Allt útlit er því fyrir að eftirtaldir aðilar sleppi undan persónulegri ábyrgð. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings. Hann stofnaði sitt félag árið 2006. Félagið skuldaði bankanum tæpa sex milljarða króna við hrunið að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þórarinn Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eignastýringar bankans. Hann flutti hlutabréfaeign sína í félagið THSV sem var stofnað árið 2006. Það skuldaði bankanum rúmar 900 milljónir við hrunið og er nú gjaldþrota. Kristján Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, setti sína hlutabréfaeign í félagið 7 hægri ehf sem skuldaði bankanum rúman 1,8 milljarð króna við hrunið. Félagið var stofnað í febrúar 2008. Aðrir yfirmenn færðu hlutabréfaeign sína og lán yfir í einkahlutafélög innan við hálfu ári frá hruni bankans. Búast má við að mál gegn þeim verði þingfest nú í haust náist ekki samkomulag um greiðslu. Þetta eru m.a.: Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta. Hann stofnaði eignarhaldsfélag í sömu viku og bankinn var þjóðnýttur og færði hlutabréfaeign sína þangað. Félagið skuldaði bankanum rúma 5,7 milljarða í lok árs 2008. Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrrverandi yfirmaður fjárstýringar. Félag hans RST ehf. var stofnað í júní 2008. Það skuldaði bankanum tæpan 1,3 milljarða króna í árslok 2008.Uppfært 17. desember 2013: Ranghermt var í fréttinni að Þórarinn Sveinsson hefði fært bréf sín yfir í félagið THSV. Félagið var stofnað árið 2006 og keypti bréf í Kaupþingi á markaði þann 12. apríl 2007. Ekki var því um færslu bréfa að ræða. Félagið greiddi auk þess aldrei arð til eiganda.
Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent Persónuvernd sektar Creditinfo um 37 milljónir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira