Gosið bætir gráu í svört ský yfir Evrópu 20. maí 2010 01:00 Heiðursgestir hjálpast að Ulrich Schulte-Strathaus kemur Simon Calder til aðstoðar við upphaf erindis þess síðarnefnda þannig að ekki tók nema skamma stund að skipta á milli skyggnusýninga. Fréttablaðið/GVA
Íslendingar hafa tíma 11. júní til að sannfæra heiminn um að landið sé öruggt og að hingað sé yfirhöfuð hægt að ferðast, að sögn fjölmiðlamannsins Simons Calder. Nýta þurfi gluggann fram að HM í fótbolta. Gos í Eyjafjallajökli var til umræðu á fundi Icelandair í gær. Formaður Evrópusambands flugfélaga segir heildartap vegna þess, dagana 15. til 23. apríl, hafa numið 733 milljónum evra, eða 117,7 milljörðum króna. „Undanfarnar vikur hafa verið einstakur tími í sögu flugs hvarvetna í heiminum,“ sagði Birkir Hólm Gunnarsson, framkvæmdastjóri Icelandair, við upphaf fundar sem félagið stóð fyrir á Hótel Loftleiðum í gærmorgun um hvert stefndi í ferðaþjónustu. Húsfyllir var á fundinum og kom aðstandendum jafnvel á óvart hversu vel var mætt. Mætingin kann þó að vera til marks um hversu þá sem starfa við ferðaþjónustu þyrstir í vísbendingar um áframhaldið. Viðvarandi gos í Eyjafjallajökli þýðir enda viðvarandi óvissu fyrir geirann. Aðalfyrirlesarar á fundi Icelandair voru Ulrich Schulte-Strathaus, framkvæmdastjóri Evrópusambands flugfélaga (AEA), og Simon Calder, einn kunnasti fjölmiðlamaður samtímans á sviði ferðamennsku, en hann starfar meðal annars fyrir breska dagblaðið Independent, Sky Travel og BBC Radio.Höfum þar til HM byrjarHúsfyllir Gróft talið mættu um og yfir tvö hundruð manns á morgunverðarfund Icelandair í Þingsölum Hótels Loftleiða í gærmorgun. Fréttablaðið/GVANokkur blæbrigðamunur var á erindum fyrirlesaranna. Sá fyrri dró upp dökka mynd af horfum í flugiðnaði í Evrópu, meðan Calder sló á nokkuð létta strengi og stakk upp á leiðum til að bæta ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Calder benti á að skjótt skipist veður í lofti varðandi þau mál sem efst eru á baugi í kastljósi fjölmiðla hverju sinni. Hann segir Ísland hafa til 11. júní til að koma á framfæri skilaboðum um land og þjóð, þá hefjist nefnilega heimsmeistarakeppnin í fótbolta. „Þetta er sá gluggi sem þið hafið til að sannfæra fólk um að Ísland sé opið og vert að heimsækja.“ Eitt af því sem Calder segir að gosið í Eyjafjallajökli hafi sýnt Evrópubúum er að Ísland sé nærri. „Of nærri,“ bætti hann svo glettinn við og uppskar hlátur fundargesta. Núna segir hann því til dæmis lag að benda á að hér hafi landið margt að bjóða sem ferðalangar hafi hingað til sótt til Nýja-Sjálands. Munurinn sé sá að til Íslands sé þriggja tíma flug, en sólarhringsflug til Nýja-Sjálands. Þá stakk Calder upp á því að líkt og bæjarfélög eigi í sambandi við systurbæjarfélög í útlöndum, þá verði komið upp slíku sambandi eldfjalla. „Vesúvíus á Ítalíu gæti verið systureldfjall Eyjafjallajökuls,“ segir hann og kvað slíkt aldrei hafa verið gert áður. Ávinninginn kvað hann vera að vekja á því athygli að þótt Ísland hafi engan einkarétt á eldfjöllum þá sé það tvímælalaust besti staðurinn til að sjá eitt í ham á þessari stundu. Svört ský eru yfir EvrópuUlrich Schulte-Strathaus fer fyrir samtökum sem safna upplýsingum um flugiðnað og stunda rannsóknir á þróun atvinnuflugs. Hann fór í máli sínu yfir þær breytingar sem hann telur nauðsynlegar til að koma flugfélögum í Evrópu til aðstoðar. Og ef marka má mál hans þá er aðstoðar þörf, því þau munu standa höllum fæti í samanburði við flugfélög í öðrum heimsálfum. Hann bendir á að kreppa ríki í Evrópu og litlar líkur á hagvexti, en hann sé í raun forsenda viðsnúnings í atvinnufluginu. Auknum umsvifum efnahagslífsins fylgi aukin ferðalög fólks og meiri fraktflutningar. „Ég hélt að 11. september 2001 hefði verið birtingarmynd allsherjaráfalls fyrir flugiðnaðinn. Nú hefur komið í ljós að ég hafði rangt fyrir mér,“ sagði hann og benti á að farþegum evrópskra flugfélaga hafi fækkað um 20 milljónir milli áranna 2008 og 2009. Þá séu engar horfur á að rétti úr kútnum á þessu ári. „Svört ský liggja yfir Evrópu,“ sagði hann og vísaði meðal annars til þess skaða sem evrópsk flugfélög hafi orðið fyrir af eldgosinu í Eyjafjallajökli ofan í þegar slæmar horfur í evrópska hagkerfinu vegna skuldavanda ríkja Evrópusambandsins og hættu á að vandi Grikkja smiti út frá sér til annarra ríkja. Reglur sem flugélög lúti vegna niðurfelldra fluga þýði gífurlegan kostnað í bætur og segir hann beðið niðurstöðu um hvort þjóðríki megi hlaupa þar undir bagga. Heildartap evrópskra flugfélaga vegna röskunar á flugi 15. til 23. apríl vegna gossins í Eyjafjallajökli nemi 733 milljónum evra, eða nálægt 118 milljörðum króna. Í máli sínu kallaði Schulte-Strathaus eftir aukinni samræmingu og samvinnu Evrópulanda hvað flug áhrærir, Evrópa verði gerð að einu flugstjórnarsvæði, létt verði af flugfélögum bótaskyldu vegna óviðráðanlegra atburða. Þá þurfi að breyta reglum um flug á öskusvæðum, því líkön þau sem nú ráði hættumati, horfi ekki til þéttleika öskunnar.
Eldgos og jarðhræringar Fréttir Innlent Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira