Samþykkt Sjálfstæðisflokksins Björn Friðfinnsson skrifar skrifar 29. júní 2010 06:30 Samþykkt flokksþings Sjálfstæðisflokksins hinn 26. júní s.l. er þeim flokki til mikillar vanvirðu. Samþykkt var að draga ætti til baka aðildarumsókn Íslendinga að ESB. Samþykktin kom að vísu ekki á óvart eins og tónninn hefur að undanförnu verið í málgagni flokksins, Morgunblaðinu, og ýmsum yfirlýsingum formanns flokksins, en báðir virðast þessir aðilar nú með öllu heillum horfnir. Samþykkt flokksþingsins er að mínu mati heimskuleg og merkir það að Íslendingar megi ekki fá að kynnast því, hvaða kjör séu í boði, ef þeir ákveða með ítarlegri yfirvegun og meðfylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu að semja um aðild að ESB. Hún gefur einnig Morgun- og Bændablaðinu færi á að matreiða margvíslegar firrur um málefni ESB fyrir lesendur sína um áhrif sambandsaðildar. Nú vill svo til að sökum aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði blessunarlega gæfu til að styðja, er stöðugt í gangi samræming á þeim sviðum sem EES-samningurinn spannar. Mikill fjöldi landsmanna hefur af þeim sökum lagt stund á Evrópufræði í menntastofnunum landsins og fjallað á ýmsan hátt um hin samræmdu fræði og reglur. Verulegur hluti af nýrri löggjöf sem árlega er sett í lögum og reglugerðum hérlendis á rætur að rekja til hinna sameiginlegu Evrópureglna. Gallinn við þessa skipan er sá að ríkin í EFTA-hlið EES samningsins hafa ekki komið að mótun nýrra reglna. Upprunalega var gert ráð fyrir að þau hefðu slík áhrif með þátttöku í tilteknum nefndum framkvæmdastjórnar ESB, sem fjölluðu um breytingar og nýsköpun reglna EES-svæðisins. Síðan hefur vægi þings ESB í nýrri reglumótun vaxið á kostnað framkvæmdastjórnarinnar og þar með möguleikum EFTA-ríkjanna til áhrifa í því sambandi. Við sitjum því í vissum skilningi „í kjallaranum" og tökum við þeim ákvörðunum sem teknar eru á „efri hæðunum". Menn kunna að gera lítið úr þeim áhrifum sem Íslendingar kynnu að öðlast við inngöngu í ESB. Viðræður mínar við kunningja úr hópi þingmanna Evrópuráðsins benda hins vegar til þess gagnstæða. Áhrif þingmanna Evrópuráðsins byggjast hins vegar ekki á „morfís"ræðutækni með tilheyrandi höfuðhnykkjum og innihaldslausu kjaftæði, eins og nú virðist eiga vaxandi fylgi að fagna á löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Áhrifin myndast af vönduðum röksemdum í málflutningi og hæflileikum þingmanna til að mynda „blokkir" um tiltekið málefni á þinginu, oft á tíðum þvert á þau sjónarmið sem uppi kunna að vera meðal hinni stærri og öflugri ríkja bandalagsins. Þannig hefur t.d. Svíum tekist að hafa mikil áhrif á mótun umhverfislöggjafar ESB og fulltrúi Möltu er nú í lykilaðstöðu í fjármálastýringu sambandsins. Evrópusambandið er bandalag friðar og farsældar. Vandamál einstakra ríkja er vandamál þeirra allra eins og reynt hefur á að undanförnu. Stofnríkin voru upphaflega 6 en eru nú 27. Sambandið er nú þungaviktaraðili hvar sem það kýs að nýta fjárhagslegan mátt sinn og viðbragðsstofnanir. Það er ekki hernaðarbandalag , þótt ýmsar aðildarþjóðir þess séu jafnframt aðilar að hernaðarbandalagi. Sambandið mótar í vaxandi mæli rödd Evrópu andspænis alvarlegustu vandamálum heimsbyggðarinnar á okkar tímum. Vandamál íslensku þjóðarinnar á þessum sumardögum eru okkur vel kunn, en viðbrögð margra við þeim eru oft illskiljanleg. Þannig er hin margfræga Icesave-deila vandamál sem að margra mati er Evrópusambandinu að kenna fremur en þeim bankaskúrkum sem hana sköpuðu og eftirlitsaðilum sem sváfu á verðinum. Það, að einstakir aðilar innan Evrópusambandsins skuli hafa viðrað sjónarmið andstæð málflutningi íslenskra stjórnvalda ,virðist af mörgum talið ómakleg „árás" Evrópusambandsins á íslensku þjóðina sem útiloki aðild okkar að slíku bandalagi. Sá sem þessar línur ritað hefur til þessa verið bjartsýnn á framtíð íslenskrar þjóðar, en því miður verð ég nú að að játa að innstæða þeirrar bjartsýni fer nú þverrandi. Ljóst er að stór hluti þjóðarinnar vill nú einangra okkur frá ímynduðum óvinum meðal nágranna- og samstarfsþjóða okkar og auknu ríkjasamstarfi í álfunni. Aðild að merkilegustu samstarfsstofnun eftirstríðsáranna skal hafnað án þess að að kannað sé hvaða skilmálar eru í boði. Áfram skal láta við það setið að taka við nýjum EES- samstarfsreglum án þess að hafa um þær fjallað innan viðeigandi löggjafarstofnun Evrópusamstarfsins. Ljóst er að smám saman rekur okkur út úr evrópsku samstarfi fyrir eigin tilverknað. Hinir málglöðu „Morfis" bullukollar og aðrir andstæðingar Evrópusamstarfsins í Sjálfstæðisflokknum, geta óendanlega haldið áfram að verja hvaða „rugl-málstað" sem þeim er fenginn. Ég óttast þær afleiðingar hinnar þröngsýnu afstöðu sem hér um ræðir, að ungir og vel menntaðir Íslendingar muni í vaxandi mæli greiða atkvæði „með fótunum" og yfirgefa landið til að velja sér búsetu í ríkjum þar sem opinberri þröngsýni og heimsku er ekki hampað á flokksþingum stórra stjórnmálaflokka. Flokka, sem vilja láta taka sig alvarlega. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar