Álitsgerð forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík
Jafnframt segir forseti Lagadeildar HR að það sé rangt hjá mér að hann hafi sagt að íslenskir dómstólar geti ekki leyst úr jafn viðamiklu skaðabótamáli og hér um ræðir. Í niðurlagi greinar sinnar lýsir forseti lagadeildar HR vonbrigðum með að formaður Lögmannafélagsins skuli ekki sjá sér fært að taka undir þá ályktun hans að íslenskir dómstólar séu illa undir svona mál búnir af skipulagslegum ástæðum og vegna fjárskorts og undirmönnun.
Það er enginn ágreiningur á milli formanns Lögmannafélagsins og forseta Lagadeildar HR um fjölgun dómsmála á komandi misserum í tengslum við hrun bankanna. Á þeim tíma sem forseti lagadeildar ritar undir álitsgerð sína hafði heildarmálum fyrir dómi ekki fjölgað og þegar verið brugðist við fyrirsjáanlegri aukningu mála frá slitastjórnum með fjölgun dómara í héraði.
Ég hef frá því snemmsumars unnið náið með starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins, fulltrúum dómstólaráðs, Dómarafélagsins og Hæstaréttar, þar sem lagt hefur verið mat á hvernig álag á dómstólana muni aukast. Hefur verið aflað upplýsinga frá slitastjórnum bankanna og sérstökum saksóknara um fjölda mála, stærð þeirra og hvenær líklegt væri að málin komi til kasta dómstólanna. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að stjórnvöld geti brugðist við auknu álagi hjá dómstólum. Ástæðan er sú að í stjórnarskrá Íslands og í mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur er á Íslandi eru ákvæði sem kveða á um réttláta málsmeðferð innan hæfilegs tíma.
Þótt fyrir liggi að fjölgun verði á dómsmálum vegna slitameðferðar bankanna er ekki hægt að draga þá ályktun að fjölgun verði í öðrum tegundum mála. Þó svo að aukning eða eðli mála verði til þess að hægist á meðferð dómsmála er ekki þar með sagt að málsmeðferð brjóti gegn framangreindum reglum stjórnarskrárinnar og MSE.
Með hliðsjón af framangreindum staðreyndum er undarlegt að forseti lagadeildar HR skuli draga þá ályktun að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr skaðabótamáli slitastjórnarinnar gegn sjömenningunum. Virðist forseti lagadeildar HR hvorki vita hvað hefur verið gert til þess að bregðast við fyrirsjáanlegri aukningu mála né hvað stjórnvöld hyggjast gera ef hætta er á að málin dragist um of á langinn.
Forseti lagadeildar HR telur það rangt hjá mér að hann hafi sagt í áliti sínu að íslenskir dómstólar „geti ekki" leyst mál af þessari stærðargráðu.
Hér er hártogun um hárfína merkingu orða sem skiptir engu máli í umræðunni. Í mínum huga er lítill munur á því í þessu samhengi að „vera illa í stakk búinn" og „geta ekki" leyst úr málum. Þegar lesin er álitsgerð forseta lagadeildar HR í heild sinni verður hún ekki skilin öðru vísi en svo að íslenskir dómstólar séu ekki færir um að leysa úr svona flóknu og umfangsmiklu máli af skipulagslegum ástæðum og vegna fjárskorts og undirmönnunar.
Ekki veit ég hver tilgangur slitastjórnarinnar var með því að leita álits forseta lagadeildar HR um stöðu dómstólanna og getu þeirra til að leysa úr flóknum og umfangsmiklum málum. Mér vitanlega hefur forseti lagadeildar HR ekki flutt eitt einasta dómsmál svo árum skiptir eða stundað rannsóknir á stöðu dómstóla og getu þeirra til að leysa úr málum. Þó má ætla að forseti lagadeildar viti, eins og allir aðrir sem stundað hafa lögfræðistörf og kennslu, að málshraði fyrir íslenskum dómtólum er meiri en í þeim réttarríkjum sem við berum okkur saman við. Ekki er ástæða til að ætla að málshraði breytist eins og hendi sé veifað án þess að við því verði brugðist eða málsmeðferð verði ekki jafnvönduð og áður.
Þar sem ég tel álit forseta lagadeildar HR rangt þótti mér rétt og skylt sem starfsmanni og þjóni íslenska réttarkerfisins að andmæla því með yfirlýsingu. Skiptir þá engu máli að ég hafði áður unnið fyrir slitastjórn Glitnis banka hf. enda þau störf ótengd efni yfirlýsingar minnar. Ég veit ekki hvað slitastjórninni og forseta lagadeildar HR gekk til með því að leggja fram þetta álit sem er til þess fallið að rýra traust og trúverðugleika íslenskra dómstóla úti í hinum stóra heimi að ófyrirsynju. Ef slitastjórnin virkilega trúir því að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr þessu flókna og umfangsmikla skaðabótamáli af skipulagslegum ástæðum og vegna fjárskorts og undirmönnunar verður að teljast undarlegt að hún hyggist leggja fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur önnur flókin og umfangsmikil ágreiningsmál sem komið hafa upp í tengslum við slitameðferðina í stað þess að leita úrlausna hjá dómstólum erlendis.
Það kann vel að vera að einhver haldgóð rök standi til málshöfðunar slitastjórnar á hendur þessum íslensku mönnum úti í New York. Ég skal ekkert um það segja en þau rök að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr málinu standast ekki skoðun.
Skoðun
Annars konar skoðun á hinu ósýnilega í lífi fólks
Matthildur Björnsdóttir skrifar
Evrópa og Bandaríkin í skugga hægri öfga
Reynir Böðvarsson skrifar
Lýðræðið í hættu – stjórnmálaflokkar án lýðræðislegrar uppbyggingar
Svanur Guðmundsson skrifar
Ögurstund í Seyðisfirði: Áskorun til nýrrar ríkisstjórnar
Árni Finnsson,Benedikta Guðrún Svavarsdóttir,Elvar Örn Friðriksson,Guðrún Óskarsdóttir,Jón Kaldal,Rakel Hinriksdóttir,Snorri Hallgrímsson,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Þú mátt nauðga ef einhver karl á internetinu leyfir þér það
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Pólitíkin þá og nú
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir skrifar
Þar lágu Danir í því: Stórveldi eiga hagsmuni, ekki vini?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Gagnlegar símarettur
Davíð Már Sigurðsson skrifar
Réttindagæsla fatlaðs fólks á valdi þekkingarleysis
Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar
Gerviverkalýðsfélagið Efling
Aðalgeir Ásvaldsson skrifar
Áhugamönnum um hagræðingu fjölgar
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skiptir stærðin máli? Litháenskir sérfræðingar á Íslandi: Eining og samstarf
Inga Minelgaite skrifar
Sorg barna - fyrstu viðbrögð barna við missi
Matthildur Bjarnadóttir skrifar
Með styrka hönd á stýri í eigin lífi
Árni Sigurðsson skrifar
Hjólað inní framtíðinna
Búi Bjarmar Aðalsteinsson skrifar
Framsækin ríkisstjórn í umhverfis- og auðlindamálum: Nýi stjórnarsáttmálinn.
Stefán Jón Hafstein skrifar
Hugvíkkandi meðferðir eru fortíð okkar, nútíð og framtíð
Sara María Júlíudóttir skrifar
Komdu út að „Vetrar-leika“ í Austurheiðum Reykjavíkur
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Upprætum óttann við óttann
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar
Hér er kona, um konu…
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar
Vegna greinar Snorra Mássonar
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Ertu á krossgötum?
Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins?
Sigurjón Þórðarson skrifar
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg?
Gunnar Ármannsson skrifar
Máttur kaffibollans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar
Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin
Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Árið 1975 er að banka
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar