Aníta heimsmeistari Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júlí 2013 00:01 Nordicphotos/Getty
Aníta Hinriksdóttir úr ÍR varð í dag heimsmeistari ungmenna í 800 metra hlaupi í Donetsk í Úkraínu. Aníta átti langbesta tímann í undanúrslitum af öllum keppendum og þótti sigurstrangleg fyrir hlaupið. Aníta virkaði afslöppuð þegar keppendur voru kynntir til leiks og ætlaði sér greinilega að standa sig. Aníta hljóp fyrri hringinn á 58,25 sekúndum en okkar fótfrái hlaupari var í algjörum sérflokki. Eftir fyrri hringinn tók hún fram úr öðrum keppendum, jók aðeins forskotið á seinni hringnum og kom langfyrst í mark á tímanum 2:01,13 mínútum. Tíminn er sá næstbesti á árinu og tæpri sekúndu frá hennar besta tíma, 2:00,49. Dureti Edao frá Eþíópíu hafnaði í öðru sæti á 2:03,25 mínútum og Raevyn Rogers frá Bandaríkjunum varð þriðja á 2:03.32.Nánari úrslit má sjá hér. Ísland hefur eignast sinn fyrsta heimsmeistara í frjálsum íþróttum í flokki ungmenna. Til hamingju Aníta Hinriksdóttir og Íslendingar allir.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sjá meira