Sigríður María með þrennu í flottum sigri á Moldavíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2013 16:49 Sigríður María Sigurðardóttir . Mynd/Heimasíða KR
KR-ingurinn Sigríður María Sigurðardóttir skoraði þrjú mörk og Blikinn Esther Rós Arnarsdóttir átti þátt í fjórum mörkum þegar íslenska 17 ára landslið kvenna í fótbolta vann 6-0 sigur á Moldavíu í undankeppni EM í dag. Íslensku stelpurnar hafa þar með unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum með markatölunni 11-0 og hafa með því tryggt sér sæti í milliriðli. Stelpurnar mæta síðan Ungverjum í lokaleiknum í úrslitaleik um efsta sætið í riðlinum. Ungverjar unnu 8-0 stórsigur á Lettum á sama tíma. Sigríður María Sigurðardóttir skoraði tvö fyrstu mörk leiksins á 6. og 8. mínútu, það fyrra kom eftir stoðsendingu Evu Bergrín Ólafsdóttur en það seinna eftir stoðsendingu frá Esther Rós Arnarsdóttur. Völsungurinn Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði þriðja markið á 50. mínútu eftir stoðsendingu frá Esther Rós og Esther Rós skoraði síðan sjálf fjórða markið á 55. mínútu. Sigríður María innsiglaði þrennu sína á 61. mínútu en þetta voru fyrstu þrjú mörk hennar í íslenska landsliðsbúningnum. Esther Rós skoraði annað markið sitt á 74. mínútu eftir stoðsendingu frá Þórsaranum Lillý Rut Hlynsdóttur og þannig urðu lokatölur leiksins.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Eva bætti hvert metið á fætur öðru Golf Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira