766 mínútna bið Gylfa á enda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2013 19:30 Gylfi Þór Sigurðsson gerir sig líkegan til að skalla boltann inn og enda langa bið sína eftir marki á Laugardalsvellinum. Mynd/Vilhelm
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði seinna mark Íslands í 2-0 sigri á Kýpur á Laugardalsvellinum í gær og innsiglaði með því sigur íslensku strákanna sem eru í öðru sæti riðilsins þegar aðeins ein umferð er eftir. Þetta var fyrsta landsliðsmark Gylfa á Laugardalsvellinum. Markið hans Gylfa kom á 76. mínútu leiksins en hann skoraði þá með skalla af mjög stuttu færi. Einhverjir voru að velta því fyrir sér hvort mark Gylfa hefði verið hans eigið eða hvort ætti að skrá það sem sjálfsmark. „Nei, nei, þetta er mitt mark, boltinn er á leiðinni inn. Þetta var ekki mitt fallegasta mark, ég fékk boltann í hausinn og sem betur fer lét Kolli hann fara, hann var að koma úr rangstöðunni. Hann var góður við mig og lét hann fara inn," sagði Gylfi í samtali við íslenska blaðamenn eftir leikinn. Gylfi var fyrir leikinn í gær búinn að spila sjö A-landsleiki á Laugardalsvellinum án þess að ná að skora og hann hafi heldur ekki skorað í eina 21 árs leiknum sem hann lék á Þjóðarleikvanginum. Gylfi var því alls búinn að spila í 766 mínútur á Laugardalsvellinum í landsliðstreyjunni þegar hann kom boltanum inn fyrir línuna í Kýpurleiknum. Mörk Gylfa Þórs Sigurðssonar fyrir íslenska A-landsliðið1) 7. október 2011 í Porto í Portúgal - skoraði í 3-5 tapi á móti Portúgal2) 12. október 2012 í Tirana í Albaníu - skoraði í 2-1 sigri á Albaníu3 og 4) 22. mars 2013 í Ljubljana í Slóveníu - skoraði 2 mörk í 2-1 sigri á Slóveníu5) 11. október 2013 á Laugardalsvellinum - skoraði í 2-0 sigri á Kýpur
Fótbolti Íslenski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira