Reiknað með að Þóra Björg byrji í markinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. október 2013 11:00 Guðbjörg og Þóra á æfingu liðsins í Serbíu. Mynd/KSÍ
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, staðfesti við Fréttablaðið í gær að reikna mætti með breytingum á liðinu í dag gegn Serbíu frá því í leiknum gegn Sviss. Stelpurnar okkar mæta Serbum ytra í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2015 ytra í dag. Flautað verður til leiks klukkan 13 en fylgst verður með gangi mála hér á Vísi. Freyr sagði að bæði yrðu breytingar á byrjunarliðinu sjálfu en einnig taktísku uppleggi liðsins. Landsliðsþjálfarinn staðfesti í Sportspjallinu á Vísi á dögunum að best væri að Hallbera Guðný Gísladóttir léki í stöðu vinstri bakvarðar með landsliðinu. Hallbera var í sinni gömlu stöðu, vinstri kanti, gegn Sviss en reikna má með henni í stöðu vinstri bakvarðar í dag. Þá má telja afar líklegt að Freyr láti Þóru Björgu Helgadóttur byrja leikinn á kostnað Guðbjargar Gunnarsdóttur. Guðbjörg fór á kostum með landsliðinu í Svíþjóð á meðan Þóra sat á bekknum. Guðbjörg gerði sig hins vegar seka um slæm mistök í fyrra marki Sviss á Laugardalsvelli en varði þó vel út leikinn. Þóra Björg hefur verið í sérflokki í sænsku deildinni á nýyfirstaðinni leiktíð. Að óbreyttu verður hún í marki Íslands í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir mun bera fyrirliðabandið í dag. Tilkynnt var í gær að Margrét Lára yrði arftaki Katrínar Jónsdóttur sem leitt hefur íslenska liðið undanfarin áratug.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Sjá meira