Allt í lagi, Guðni! Sighvatur Björgvinsson skrifar 12. desember 2013 06:00 Ég man eftir því frá því ég var ungur drengur – fyrir meira en 60 árum – að þegar amma mín og síðan mamma gerðu sér sérstakt far um að vanda matseldina þá var einstök áhersla lögð á að nota bæri ÍS-lenskt smjör – með þungri áherslu á fyrsta atkvæðið. Ekkert hráefni í veröldinni jafnaðist á við þetta ÍS-lenska smjör – með þungri áherslu á fyrsta atkvæðið. Allt annað smjör var vont, óheilnæmt – já jafnvel hættulegt. Hættulegt fyrir ÍS-lenska kúakynið. Gæti hreint og beint dáið út vegna smitsýkinga fyrir áhrif af erlendu smjöri. Og mannfólkinu hér uppi á skerinu væri líka í hættu stefnt. Íslenski kynstofn mannfólksins gæti líka horfið af völdum iðrasýkinga ef étið væri erlent smjör á Íslandi. Meira að segja eftir að ég komst til vits og ára var þetta ÍS-lenska viðhorfið. Hversu margar tilvitnanir þar að lútandi er ekki hægt að sækja í forðabúr Guðna Ágústssonar! Aldrei hefur hann kysst útlendar mjólkurkýr! Slíkt væri enda varasamt – beinlínis hættulegt! Líkast til fyrir bæði!Yfirverðið áfram? Síðan hlustar maður á kvöldfréttir sjónvarpsins 10. desember sl. þar sem sagt er frá því að háborg ÍS-lenskrar mjólkurframleiðslu – með áherslu á fyrsta atkvæðið – hafi flutt inn tvo gáma af írsku sméri til þess að blanda saman við ÍS-lenskar afurðir ÍS-lenskra mjólkurkúa til þess að anna eftirspurn eftir ÍS-lensku sméri, ÍS-lenskum rjóma og ÍS-lenskum ostum – með áherslu á fyrsta atkvæðið. Forstjóri háborgarinnar segir, að ástæðulaust sé að merkja hinar ÍS-lensku afurðir búnar til úr þessu útlenda sméri sérstaklega – því þetta sé bara gert núna fyrir jólin. Skammtímaaðgerð. Auk þess segir forstjórinn að bragð og áferð írska smjörsins sé alveg sú sama og þess ÍS-lenska – með áherslu á fyrsta atkvæðið. Hvað er hér að gerast? Er háborg mjólkuriðnaðarins gengin af trúnni? Er slíkt athæfi ekki stórhættulegt – fyrir íslenskan kynstofn mjólkurkúa og íslenskan kynstofn mannfólks? Ætlar forstjórinn kannske að bjóða íslenskum neytendum írska smjörið á heimsmarkaðsverði – eða þarf áfram að borga yfirverð fyrir hina sérstöku áherslu á fyrsta atkvæðið þó innihaldið sé komið frá Írum?Hvað er að gerast með ketið? Hvað er líka að gerast með ketið? Þegar ég fór fyrst að ferðast til útlanda mátti enginn Íslendingur taka með sér kjötvöru erlendis frá nema tekið væri sérstaklega fram á umbúðunum að ketið væri soðið. Kæmi slíkt ekki fram með greinilegum hætti var rúllupylsan tekin af ferðalöngum í flugstöðinni á Keflavíkurvelli – og brennd. Svo hættuleg var hún talin, að ekki væri einu sinni óhætt að taka hana inn fyrir landamærin óbrennda í vörslu lögreglu. Svo mikil hætta stafaði af ósoðnu, útlendu keti fyrir íslenska ketframleiðslu og íslenskt mannfólk. Og nú sér maður ósoðnar ítalskar pylsur og ósoðnar spánskar hráskinkur í umbúðum þarlendra framleiðenda á boðstólum í íslenskum matvörumörkuðum. Í stórum hópum og í löngum röðum í kæliborðum og frystikistum. Sams konar matvæli í sams konar umbúðum yrðu tekin af íslensku ferðafólki heimkomnu frá Ítalíu eða Spáni í Leifsstöð og brennd umsvifalaust vegna hættu sem þær sköpuðu fyrir íslenska búfjárstofna og íslenskt mannfólk. Er skýring á þessu misræmi? Jú – ástæðan er sú, að búið er að tolla þessar ósoðnu ítölsku pylsur og ósoðnu spánsku hráskinkur upp úr öllu valdi þegar þær eru boðnar Íslendingum í matvörumörkuðum. Orðnar dýrari en gull! Þetta er án efa merkasta uppgötvun íslenskra stjórnvalda og innflutningsyfirvalda matvara og er heimssöguleg. Á inni heimsverðlaun! Þegar matvara hefur sætt háum tollum auk innflutningshamla er hún orðin sóttfrí! Kvíðum því ekki vaxandi innflutningi á lifandi erlendu túrhestaketi. Tollum það bara nógu hátt. Þá verður allt í lagi, Guðni! Allt í lagi með sauðskepnuna og kúna. Og allt í lagi með mannfólkið – líka Framsóknarmenn. Engin sótthætta. Ekkert ESB-smit. Allt hátollað, innflutningsvarið og dýrt. Einmitt þess vegna hafa Íslendingar engin efni á því að hjálpa fátæku fólki í þróunarlöndum. Eins og Vigdís segir. Fyrst verðum við að fá að éta áður en við getum gefið öðrum að éta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sighvatur Björgvinsson Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar