Mandzukic genginn í raðir Atletico Madrid Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. júlí 2014 14:00 Vísir/Getty
Atletico Madrid staðfesti rétt í þessu að félagið hefði gengið frá kaupunum á króatíska framherjanum Mario Mandzukic frá Bayern Munchen. Mandzukic skrifaði undir fjögurra ára samning hjá Atletico. Mandzukic sem gekk til liðs við Bayern Munchen fyrir tveimur árum vann alla titla sem í boði voru á tveggja ára tímabili hjá félaginu. Í ljós kom hinsvegar að hann og Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Bayern áttu ekki samleið og komust aðilar að samkomulagi að best væri fyrir Mandzukic að finna sér nýtt félag. Mandzukic er Íslendingum kunnugur en hann fékk rautt spjald í leik Króatíu og Íslands ytra fyrir ljóta tæklingu á Jóhanni Berg Guðmundssyni eftir að hafa skorað fyrsta mark Króata í leiknum. Talið er að fljótlega fylgi tilkynning frá Atletico Madrid þar sem félagsskipti Diego Costa til Chelsea verða staðfest en Atletico hefur verið að leita að eftirmanni Costa áður en gengið væri frá félagsskiptunum.
Spænski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sjá meira