Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - Fjölnir 1-3 | Fjölnir úr fallsæti á kostnað Fram Guðmundur Marinó Ingvarsson á Laugardalsvelli skrifar 15. september 2014 17:37 Þórir Guðjónsson og Matthew Ratajczak fagna marki í kvöld. vísir/daníel
Fjölnir lyfti sér úr fallsæti Pepsí deildar karla í fótbolta með því að leggja Fram 3-1 í sannkölluðum sex stiga leik í fallbaráttu deildarinnar. Fjölnir var í næst neðsta sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins en með sigrinum er liðið með stigi meira en Fram og að auki fyrir ofan Keflavík á betri markamun í æsilegri fallbaráttu. Það virtist sem aðeins annað liðið væri að spila upp á líf sitt í deildinni því Fjölnismenn börðust eins og ljón á meðan Framarar virkuðu andlausir. Framarar virtust ekki klárir í að berjast upp á líf sitt sem hlýtur að vekja furðu í ljósi þess að liðið á FH og Stjörnuna í næstu leikjum áður það mætir Fylki í lokaumferðinni. Varnarleikur Fram var ákaflega slakur og þurftu Fjölnismenn að hafa lítið fyrir mörkunum sem liðið skoraði þó ekkert sé tekið af liðinu sem lék vel. Fjölnisliðið var mjög vel skipulagt og fékk einu færi fyrri hálfleiks og nýtti þau vel en fátt annað markvert gerðist í hálfleiknum. Mun meira fjör var í seinni hálfleik en Framarar fóru þó ekki að ógna marki Fjölnis fyrr en þeir voru lentir þremur mörkum undir.Gunnar Már Guðmundsson skoraði fyrsta mark leiksins á 26. mínútu með góðu skoti utan teigs og sex mínútum síðar bætti Þórir Guðjónsson við marki eftir mikinn klaufagang í vörn Fram.Ragnar Leósson skoraði þriðja markið á níundu mínútu seinni hálfleiks en Fjölnir hefði hæglega getað skorað mun fleiri mörk í leiknum en liðið fékk bæði fleiri og betri færi en Fram það sem eftir lifði leiks þó Fram hafi fengið einu færin sín í leiknum í stöðunni 3-0. Fyrir leikinn hafði Fjölnir aðeins unnið einn leik af síðustu sextán á meðan Fram hafði unnið þrjá af fimm. Fram náði ekki að taka þann meðbyr með sér í leikinn á sama tíma og Fjölnir fann þann kraft sem stundum hefur vantað í sumar.Gunnar Már skoraði gull af marki í kvöld.vísir/stefánGunnar Már: Þetta small saman í kvöld „Við hlupum meira og gerðum það sem þurfti. Eftir að við komumst 2-0 yfir var þetta þægilegt,“ sagði Gunnar Már Guðmundsson sem skoraði glæsilegt fyrsta mark leiksins í kvöld. „Það var sjálfstraust í liðinu þegar við mættum inn á völlinn. Við þorðum að halda boltanum og gera hlutina einfalt sem hefur svolítið vantað hjá okkur. Þetta small saman í kvöld og við vorum betra liðið. „Við vorum búnir að skoða Fram vel. Ágúst (þjálfari Gylfason) var búinn að segja okkur hvernig við áttum að mæta þeim og það gekk eftir. Svona seint í mótinu er erfitt að koma öðrum liðum á óvart. „Við vorum klárir í þennan leik. Þegar við mættum þeim í fyrri umferðinni þá löbbuðu þeir yfir okkur og við vorum með það bakvið eyrað. Við vildum alls ekki að það myndi gerast aftur. Við unnum fyrir hvern annan og gerðum þetta eins og lið. „Það eru erfiðir leikir eftir og þetta er alls ekki búið. Við þurfum fleiri stig til að halda okkur í deildinni,“ sagði Gunnar Már að lokum.Guðmundur Steinn með boltann í kvöld.vísir/stefánGuðmundur Steinn: Við þurfum að trúa „Flest allt sem gat klikkað í kvöld gerði það. Í grunninn þarf að mæta til leiks með vilja og baráttu gegn körlum eins og við mættum í dag sem voru sprækir Fjölnismenn. Við byrjuðum að klikka þar og þá er þetta brekka,“ sagði Guðmundur Steinn Hafsteinsson fyrirliði Fram. „Við náðum aldrei neinum takti í okkar leik og því spili sem við viljum. Það orsakast af því hvernig við mættum inn í leikinn. Það er mjög dapurt. „Mér leið eins og menn veæru stemmdir þegar við mættum hingað í Laugardalinn en svo frá fyrstu mínútu var þetta dapurt. „Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá var ég ekki stressaður fyrir þennan leik en við fundum allir að það væri eitthvað undir og það á að vera gaman og þá eiga menn að stíga upp. Það gerðist ekki í dag, hjá engum okkar. „Þeir svöruðu þeirri mótspyrnu sem þeir hafa verið að lenda í í leiknum í kvöld á meðan við koðnum niður. Það er áhyggju efni en við þurfum að rífa okkur upp úr þessu,“ sagði Guðmundur sem segir liðið ekki hafa aðra valkosti en að rífa sig upp í útileikjunum gegn tveimur efstu liðunum sem bíða í næstu tveimur umferðum. „Ef við myndum ekki trúa því að við gætum náð úrslitum gegn FH og Stjörnunni þá myndum við panta miðann í fyrstu deildina strax. Við förum þangað til að ná í úrslit. Það er klárt. Við getum gert það en við þurfum að eiga toppleik, allir sem einn. „Við þurfum úrslit og getum ekki bara beiðið eftir síðasta leiknum og reynt að gera eitthvað þar. Við eigum í okkur að ná í úrslit á móti toppliðunum. Við þurfum bara að kafa djúpt. Við áttum fínan leik á móti KR um daginn þar sem hefði getað farið betur. Við þurfum bara að trúa,“ sagði Guðmundur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eiður Smári sá son sinn leggja upp mark á móti Chelsea Fótbolti Andri Lucas: „Vona að pabbi hafi haldið með mér“ Fótbolti Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Enski boltinn Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Körfubolti Ten Hag útskýrir af hverju hann tók Rashford út af í hálfleik Fótbolti „Ennisbandið var slegið af honum“ Körfubolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Morata í stríði við bæjarstjóra sem er stuðningsmaður Inter Fótbolti „Þarft að vera sami leikmaður og á Íslandi og bæta tuttugu prósentum ofan á það“ Fótbolti Fleiri fréttir Svona var kynningarfundurinn fyrir úrslitaleikinn Snýr aftur heim í KR Tarik í bann eftir fræknu frammistöðuna Sjáðu slysalegt sjálfsmark og Emil skora í tólfta sinn Hilmar Árni: Þurftum að vinna, gerðum það og svo bara næsti leikur Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Oliver við æfingar á Englandi eftir frábært tímabil með ÍBV Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Fær Njarðvík frekar stimpilinn? „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn „Ætli svona 4-3 hefði ekki verið sanngjarnt“ „Hún er þarna til að verja og hún gerir það vel“ Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Uppgjörið og viðtöl: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Uppgjörið: Vestri - HK 2-1 | Vestri úr fallsæti og með örlögin í eigin höndum „Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“ Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Utan vallar: Ungt og leikur sér Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn