Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Valur - FH 1-4 | Afmælisbarnið með leik upp á tíu Ingvi Þór Sæmundsson á Vodafonevellinum skrifar 28. september 2014 00:01 FH-ingar fagna í dag. vísir/stefán
FH sýndi styrk sinn með því að vinna 1-4 sigur á Val á Vodafone-vellinum, þar sem liðinu hefur gengið bölvanlega undanfarin ár. Sigurinn dugði hins vegar ekki til að tryggja FH Íslandsmeistaratitilinn því Stjarnan lagði Fram 4-0 í Garðabænum á sama tíma. Það verður því hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika næsta laugardag. Hinn almenni fótboltaáhugamaður á Íslandi hefur því verið bænheyrður.Atli Guðnason, sem fagnar 30 ára afmæli sínu í dag, átti stórkostlegan leik fyrir FH í dag, en hann skoraði þrennu og lagði upp mark fyrir Steven Lennon að auki. Valur byrjaði leikinn vel og jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Heimamenn komust yfir með skallamarki Magnúsar Más Lúðvíkssonar á 16. mínútu eftir sendingu frá Sigurði Agli Lárussyni, langbesta leikmanni Vals í dag. Valsmenn héldu forystunni ekki lengi, en aðeins um mínútu síðar skallaði afmælisbarnið Atli Guðnason boltann framhjá Antoni Ara Einarssyni, markverði Vals, eftir fyrirgjöf Ingimundar Níelsar Óskarssonar. Aðeins tveimur mínútum síðar bjargaði Billy Brentsson skoti Péturs Viðarssonar á línu eftir hornspyrnu Ólafs Páls Snorrasonar. Eftir þessar ótrúlegu mínútur komst leikurinn aftur í jafnvægi. Valsmenn voru að spila vel, eins og lið með þann mannskap sem þeir eru með ætti að geta spilað í hverri umferð. Það munaði reyndar miklu fyrir þá að missa Iain Williamson meiddan af velli þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Margir vildu meina að Lennon hefði átt að fá rauða spjaldið fyrir brotið á Williamson, en Garðar Örn Hinriksson, dómari leiksins, lét sér fátt um finnast og sleppti því að spjalda Lennon sem hafði nokkrum mínútum áður brennt af dauðafæri inni í vítateig Vals. Staðan var 1-1 í hálfleik, en á annarri mínútu seinni hálfleik skoraði Atli sitt annað mark af stuttu færi eftir hornspyrnu Ólafs Páls og skalla Jonathan Hendrickx. Valsmenn virtust ekki hafa lært af reynslunni og gleymdu Atla aftur inni í vítateignum. Afmælisbarnið þakkaði pent fyrir og náði forystunni fyrir Hafnarfjarðarliðið. Á 54. mínútu var Atli aftur á ferðinni þegar hann fíflaði varnarmenn Vals og sendi boltann á Lennon sem skoraði af öryggi. Eftir þetta var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda. FH-ingar héldu boltanum vel og höfðu öll tök á leiknum. Atli fullkomnaði þrennuna á 70. mínútu eftir sendingu frá Lennon, sem launaði afmælisbarninu greiðann frá því í þriðja markinu. Þetta var 10. mark Atla í Pepsi-deildinni í sumar, en hann er markahæstur í liði FH. Skömmu síðar tók Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, Atla af velli til að forða honum frá gulu spjaldi sem myndi útiloka hann frá þátttöku í úrslitaleiknum um næstu helgi. Nokkrum mínútum síðar kippti Heimir Kassim Doumbia einnig af velli, en Malí-maðurinn var einnig á hættusvæði. Leikurinn fjaraði hægt og rólega út - Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, skaut boltanum reyndar í stöngina á 84. mínútu - og FH-ingar fögnuðu að lokum 1-4 sigri. Úrslitaleikurinn fer fram næsta laugardag þar sem FH-ingum dugir jafntefli. Valsmenn eiga hins vegar enn möguleika á Evrópusæti, en þeir mæta Breiðabliki á Kópavogsvelli í lokaumferðinni.Heimir: Atli var með sýningu í seinni hálfleik „Það verður úrslitaleikur í Kaplakrika. Það verður væntanlega hörkuleikur. Stjarnan er með hörkulið sem hefur spilað vel í sumar. Við þurfum að einbeita okkur að leiknum þegar líður á vikuna,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir sigurinn á Val í dag, en ljóst er að FH og Stjarnan mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn næsta laugardag. „Eina hugsunin fyrir þennan leik var að vinna hann og taka svo stöðuna eftir á. Og nú er ljóst að það verður úrslitaleikur. Við þurfum að æfa vel í vikunni og undirbúa okkur vel“ sagði Heimir ennfremur. Hann sagði það hafa verið mikilvægt að jafna leikinn aðeins mínútu eftir að Magnús Már Lúðvíksson kom Val yfir. „Það var mjög mikilvægt. Valsvöllurinn hefur reynst okkur erfiður í gegnum tíðina. Það var flott að ná að jafna strax. Síðan fannst mér við koma út í seinni hálfleikinn og spila mjög vel og við skoruðum þrjú góð mörk. „Atli Guðna var með sýningu í seinni hálfleik, á afmælisdaginn,“ sagði Heimir sem var að vonum sáttur með sinn mann sem skoraði þrennu og átti eina stoðsendingu. „Atli var frábær í dag. Hann var á þremur gulum spjöldum og þess vegna vildum við endilega gefa honum heiðursskiptingu. Það var mjög fínt að geta hvílt Atla, líkt og Kassim (Doumbia), eftir að við skoruðum þetta fjórða mark. Mér fannst Valsarnir aldrei líklegir til að koma til baka.“Magnús: Ánægður með mína menn fram að öðru markinu Þrátt fyrir tapið gegn FH í dag fannst Magnúsi Gylfasyni, þjálfara Vals, sínir menn spila vel í fyrri hálfleik. Hann sagði það hafa verið áfall að fá mark á sig aðeins mínútu eftir að hafa náð forystunni. „Það var ákveðinn vendipunktur. Við misstum einbeitinguna og duttum aðeins niður eftir það, en fram að því höfum við verið frábærir. Og reyndar kláruðum við hálfleikinn ágætlega, en heilt yfir var það einbeitingarleysi sem kostaði okkur sigurinn. „Annað markið kom eftir hornspyrnu og það var búið að fara yfir allt. En þrátt fyrir það var hættulegasti maðurinn þeirra laus og hann skoraði. Atli skoraði fyrstu tvö mörkin þar sem við áttum að eiga alls kostar við hann. „FH-liðið er gríðarlega gott og eftir að þeir komust yfir var erfitt að eiga við þá. En fram að öðru markinu var ég ánægður með mína menn,“ sagði Magnús, en hvað fannst honum um atvikið þegar að Iain Williamson meiddist eftir tæklingu Stevens Lennon? „Ég sá það ekki nógu vel til að geta dæmt um það. Hann setti takkanna allavega í hnéð á honum og það er dálítið ljótt og Iain fékk slæman skurð. Það riðlaði okkar leik heilmikið að missa hann út af.“ Valsmenn eiga enn möguleika á Evrópusæti, en Víkingar, sem sitja í 4. sætinu, töpuðu fyrir KR í dag. „Við höfum að miklu að keppa í lokaleiknum. Við þurfum bara að ýta þessum leik frá okkur. „Við vorum að spila við besta lið landsins og töpuðum, en við ætluðum okkur aðra hluti í þessum leik. Við gerðum allt til þess að vinna þennan leik, en það ekki upp,“ sagði Magnús að lokum.vísir/stefánHeimir eftir leik.vísir/stefán
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Enski boltinn Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Körfubolti Eiður Smári sá son sinn leggja upp mark á móti Chelsea Fótbolti „Ennisbandið var slegið af honum“ Körfubolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti „Þarft að vera sami leikmaður og á Íslandi og bæta tuttugu prósentum ofan á það“ Fótbolti „Fannst við spila fullkominn fyrri hálfleik“ Fótbolti Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Handbolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Handbolti Fleiri fréttir Svona var kynningarfundurinn fyrir úrslitaleikinn Snýr aftur heim í KR Tarik í bann eftir fræknu frammistöðuna Sjáðu slysalegt sjálfsmark og Emil skora í tólfta sinn Hilmar Árni: Þurftum að vinna, gerðum það og svo bara næsti leikur Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Oliver við æfingar á Englandi eftir frábært tímabil með ÍBV Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Fær Njarðvík frekar stimpilinn? „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn „Ætli svona 4-3 hefði ekki verið sanngjarnt“ „Hún er þarna til að verja og hún gerir það vel“ Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Uppgjörið og viðtöl: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Uppgjörið: Vestri - HK 2-1 | Vestri úr fallsæti og með örlögin í eigin höndum „Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“ Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Utan vallar: Ungt og leikur sér Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn