Ákvörðunin að fara til Verona algjör Guðsgjöf Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. september 2014 07:00 Emil Hallfreðsson nýtur lífsins hjá Hellas Verona í ítölsku A-deildinni og er klár í slaginn með íslenska landsliðinu í undankeppni EM. vísir/getty
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur leik í undankeppni EM 2016 á þriðjudagskvöldið þegar liðir mætir Tyrklandi á Laugardalsvellinum. Strákarnir okkar æfðu þar í grenjandi rigningu í gær, en áður en æfingin hófst nýtti Emil Hallfreðsson tímann og prófaði nýju Boeing-flugvélasætin sem sett hafa verið upp á varamannabekkjunum. „Ekki ætlarðu að sitja hér á þriðjudaginn?“ spyr blaðamaður Emil. „Ég ætla rétt að vona ekki. Ég vel samt ekki liðið. En vonandi ekki,“ svarar Emil léttur. Hann er spenntur fyrir því að byrja nýja undankeppni. „Mér líst vel á þetta, en við erum í svakalega erfiðum riðli. Ef við ætlum að eiga einhvern séns á að komast áfram verðum við að eiga tíu toppleiki,“ segir Emil. Hann viðurkennir að mikilvægt sé að byrja vel til að halda áhuga fólksins og meðbyrnum með liðinu. „Engin spurning. Ef við byrjun vel fáum við fólkið með okkur og það gefur okkur sjálfstraust. Þegar það er meiri áhugi fyrir liðinu er meiri stemning í kringum allt saman og þá er allt miklu skemmtilegra.“Emil skýtur að marki í landsleik gegn Wales.vísir/gettyFór ekki í mínus Síðasta undankeppni gekk frábærlega, en Ísland komst í umspil um sæti á HM í fyrsta skipti í sögunni. Þar tapaði liðið aftur á móti fyrir Króatíu sem virtist fara illa í menn, en sumir hverjir áttu erfitt uppdráttar með sínum félagsliðum eftir sorgina í Zagreb. Hvernig er að reyna að endurræsa hugann fyrir svona keppni? „Við erum búnir að núllstilla okkur. Við áttum frábæra undankeppni síðast og þó við töpuðum á móti Króatíu þá gerðum við eitthvað sem enginn átti von á. Maður verður að líta á þetta jákvætt,“ segir Emil, sem hélt áfram sínu striki með liði sínu Verona á Ítalíu og spilaði nánast alla leiki. „Menn hafa talað um að sumir hafi farið í mínus eftir tapið gegn Króatíu, en ég leit ekki á þetta þannig,“ segir Emil og heldur áfram: „Ég tók þetta með mér sem meðbyr fyrir mig með mínu félagsliði. Ég leit á þetta þannig að þarna voru Íslendingar, 320.00 manna þjóð, að komast í HM-umspil. Þegar ég kom til baka til míns félagsliðs eða hitti fólk úti á götu var ég mjög stoltur af afrekinu. Nú förum við bara inn í nýja keppni með mikla jákvæðni í kringum okkur og sigur-hugarfar.“vísir/gettyMikið ævintýri Sem fyrr segir sló Emil hvergi af með Hellas Verona í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð, en hann byrjaði í 30 af 38 leikjum liðsins sem var spútniklið deildarinnar sem nýliði og var lengi í Evrópubaráttu. „Þetta var alveg ótrúlegt. Það gekk alveg frábærlega. Við vorum nýliðar í deildinni, en við þekktum vel inn á hver annan. Svo fengum við mikinn neista í Luca Toni (fyrrv. landsliðsframherja Ítalíu) sem bætti 20 mörkum við liðið. Þetta var mikið ævintýri, sérstaklega þar sem við vorum í baráttu um að komast í Evrópudeildina þar til í síðustu tveimur umferðunum,“ segir Emil, sem viðurkennir að pressan verði meiri fyrir veturinn fram undan. „Við erum búnir að bæta við okkur góðum leikmönnum eins og Javier Saviola sem ég sá að skoraði fullt fyrir Olympiacos. Svo lítur Rafael Márquez sem við fengum líka mjög vel út. Ég horfði á HM í sumar og fannst hann svakalega góður. Það var vel gert hjá yfirmönnunum að fá hann til liðsins. Pressan verður samt meiri núna því við erum búnir að bæta við okkur þessum leikmönnum. Svo er mikill stuðningur á bak við liðið, en við erum með 25–30.000 manns á heimaleikjum. Þeir munu vilja árangur.“vísir/gettyÁkvörðunin guðsgjöf Emil var búinn að spila í tvö ár – þó aðeins ríflega 20 leiki – með Reggina í A-deildinni á Ítalíu og eitt tímabil með Barnsley í B-deildinni á Englandi áður en hann tók stökkið til Verona sumarið 2010 sem var þá í C-deildinni. Liðið er fornfrægt, varð síðast meistari í fyrsta og eina skiptið árið 1985, og ætlaði sér að komast aftur upp á meðal þeirra bestu. Verkefni var hrint í gang sem Emil bauðst að taka þátt í og hann sér ekki eftir því. „Ég get samt viðurkennt að ekki í mínum villtustu draumum gat ég ímyndað mér að þetta myndi gerast svona hratt. Ég var bara orðinn rosalega þreyttur á umhverfinu í Reggina og vildi komast burt. Ég tók því þessa áhættu og ákvað bara að gefa allt í Verona-verkefnið. Á endanum er þetta búið að vera hálfgerð guðsgjöf fyrir mig,“ segir Emil sem nýtur lífsins svo um munar í þessari gullfallegu 265.000 manna borg í norðurhluta Ítalíu. „Þetta er alveg rosalega skemmtilegt. Það er svo svakaleg stemning í kringum liðið, allir í borginni lifa sig svakalega inn í þetta með okkur. Maður fattar í raun ekkert áhugann fyrir enn maður kemur þarna út. Ég hef svo sannarlega ekki séð eftir þessu,“ segir Emil Hallfreðsson sáttur að lokum.
EM 2016 í Frakklandi Íslenski boltinn Tengdar fréttir Kolbeinn og Aron Einar klárir í slaginn gegn Tyrkjum Framherjinn og fyrirliðinn glímt við meiðsli en verða með á móti Tyrklandi á þriðjudaginn. 5. september 2014 12:35 Lars: Þetta snýst allt um smáatriðin Landsliðsþjálfaranum líst vel á undirbúninginn fyrir fyrsta leikinn í undankeppni EM 2016. 7. september 2014 12:57 Hannes: Fyrsta deildin í Noregi ekki álitlegur kostur Hannes er spenntur fyrir leiknum gegn Tyrkjum á þriðjudag og segir Ísland ekki vera með mikið slakara lið. 6. september 2014 15:15 Viðar Örn: Held ég hafi getuna til að spila í stærri deild Viðar Örn Kjartansson, framherji Vålerenga og íslenska landsliðsins, er spenntur fyrir leiknum gegn Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins á þriðjudag. Viðar segir Tyrki vera með hörkulið. 6. september 2014 12:30 Kolbeinn: Býst við að geta spilað Kolbeinn Sigþórsson verður að öllum líkindum klár í slaginn þegar Ísland mætir Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins 2016, en Kolbeinn hefur glímt við meiðsli. 6. september 2014 19:45 Jóhann Berg: Teljum okkur vera með betra lið en þeir Jóhann Berg Guðmundsson, vængmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, segir íslenska liðið stefna á sigur á þriðjudaginn gegn Tyrkjum. Leikurinn er fyrsti leikur í undankeppni Evrópumótsins sem fer fram í Frakklandi 2016. 6. september 2014 17:00 Var staðráðinn í að vinna mig aftur inn í liðið Aron Einar vann aftur sætið sitt í byrjunarliði Cardiff á dögunum og hann segist vera sáttur á meðan hann fær að spila. 6. september 2014 07:00 Meiðsli í tyrkneska hópnum Miðvörðurinn Semih Kaya og miðjumaðurinn Oğuzhan Özyakup hafa dregið sig úr tyrkneska landsliðshópnum vegna meiðsla, en Tyrkland mætir Íslandi á þriðjudag. 7. september 2014 12:28 Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport Fleiri fréttir Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Sjá meira
Kolbeinn og Aron Einar klárir í slaginn gegn Tyrkjum Framherjinn og fyrirliðinn glímt við meiðsli en verða með á móti Tyrklandi á þriðjudaginn. 5. september 2014 12:35
Lars: Þetta snýst allt um smáatriðin Landsliðsþjálfaranum líst vel á undirbúninginn fyrir fyrsta leikinn í undankeppni EM 2016. 7. september 2014 12:57
Hannes: Fyrsta deildin í Noregi ekki álitlegur kostur Hannes er spenntur fyrir leiknum gegn Tyrkjum á þriðjudag og segir Ísland ekki vera með mikið slakara lið. 6. september 2014 15:15
Viðar Örn: Held ég hafi getuna til að spila í stærri deild Viðar Örn Kjartansson, framherji Vålerenga og íslenska landsliðsins, er spenntur fyrir leiknum gegn Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins á þriðjudag. Viðar segir Tyrki vera með hörkulið. 6. september 2014 12:30
Kolbeinn: Býst við að geta spilað Kolbeinn Sigþórsson verður að öllum líkindum klár í slaginn þegar Ísland mætir Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins 2016, en Kolbeinn hefur glímt við meiðsli. 6. september 2014 19:45
Jóhann Berg: Teljum okkur vera með betra lið en þeir Jóhann Berg Guðmundsson, vængmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, segir íslenska liðið stefna á sigur á þriðjudaginn gegn Tyrkjum. Leikurinn er fyrsti leikur í undankeppni Evrópumótsins sem fer fram í Frakklandi 2016. 6. september 2014 17:00
Var staðráðinn í að vinna mig aftur inn í liðið Aron Einar vann aftur sætið sitt í byrjunarliði Cardiff á dögunum og hann segist vera sáttur á meðan hann fær að spila. 6. september 2014 07:00
Meiðsli í tyrkneska hópnum Miðvörðurinn Semih Kaya og miðjumaðurinn Oğuzhan Özyakup hafa dregið sig úr tyrkneska landsliðshópnum vegna meiðsla, en Tyrkland mætir Íslandi á þriðjudag. 7. september 2014 12:28