Arna Stefanía: Það er erfitt að vera hvít kona í spretthlaupum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. nóvember 2014 06:30 Arna Stefanía ætlar að einbeita sér að hlaupagreinum næstu árin. Vísir/Stefán
Ein efnilegasta sjöþrautarkona landsins hefur ákveðið að gera stórtækar breytingar á ferli sínum. Aðeins þrjár konur eiga betri árangur en Arna Stefanía Guðmundsdóttir í sjöþraut á Íslandi en þessi nítján ára Breiðhyltingur hefur nú ákveðið að einbeita sér að spretthlaupi, bæði 200 og 400 m, sem og grindahlaupi. Þar að auki ákvað hún að ganga til liðs við FH frá uppeldisfélaginu ÍR. „Mér fannst þetta góður tímapunktur til að breyta til,“ segir Arna Stefanía í samtali við Fréttablaðið. „Langstökkið hefur verið í ólagi í fjögur ár og ég hef verið slæm í hásininni sem hefur gert mér erfitt fyrir í hástökkinu. Kúluvarpið hefur svo verið hræðilegt en mér hefur alltaf gengið vel í hlaupunum,“ segir Arna Stefanía sem er að stíga upp úr meiðslum sem hún varð fyrir á Norðurlandamótinu í sumar. Hún var í forystu í sjöþrautinni þegar hún meiddist á ökkla. „Samstarfið við Þráin [Hafsteinsson, þjálfara] hefur alltaf gengið vel en þegar ég meiddist í sumar fundum við bæði að það væri betra fyrir mig að breyta til. Ég æfði aðeins með Silju [Úlfarsdóttur] í sumar og leist vel á þjálfarana og aðstöðuna hjá FH. Ég ræddi einnig við Akureyringa en valdi að lokum FH.“ Þráinn sagði í viðtali við Fréttablaðið í upphafi mánaðarins að takmarkaður aðgangur að hinni glæsilegu frjálsíþróttahöll í Laugardal væri afar bagalegur fyrir íþróttafélögin í Reykjavík og ekki síst afreksfólk borgarinnar í frjálsíþróttum. „Það var ekki helsta ástæðan fyrir ákvörðun minni þó það hafi vissulega spilað stórt hlutverk,“ segir Arna Stefanía en FH hefur mun betra aðgengi að sinni aðstöðu, eins og Þráinn benti á í áðurnefndu viðtali.Læt reyna á þetta í tvö ár Arna Stefanía klárar stúdentspróf í vor og stendur því á ákveðnum tímamótum, bæði í skólagöngu og á íþróttaferli. „Ég hef verið að velta því lengi fyrir mér hvernig ég eigi að skipuleggja næstu ár hjá mér. Ég mun láta reyna á þetta næstu tvö árin hið minnsta en ef það gengur ekki hjá mér getur vel verið að ég fari að einbeita mér að einhverju öðru,“ segir Arna Stefanía en áður hefur verið bent á að margt efnilegt íþróttafólk ákveði á þessum tímapunkti að helga sig frekar náms- eða starfsferli sínum en að freista þess að gerast afreksmaður í sinni íþrótt. „Það kemur til greina að byrja strax í háskólanámi en ég væri líka til í smá frí til að geta einbeitt mér að íþróttinni. En þá þyrfti ég að vinna með,“ segir hún og bætir við að hún þyrfti myndarlega styrki til að geta helgað sig frjálsíþróttunum. Hingað til hefur hún meðal annars þurft að stóla á stuðning fjölskyldu sinnar. „Ég á góða fjölskyldu sem hefur stutt mig. Ég hef til dæmis ekki getað fjármagnað æfingaferðirnar mínar sjálf,“ segir hún en Arna Stefanía hefur undanfarin ár verið að fara í 2-3 æfingaferðir út fyrir landsteinana. „En ég held að ég fari bara í eina núna.“Mun skemmtilegra að hlaupa Arna Stefanía missti af HM nítján ára og yngri í sumar vegna áðurnefndra meiðsla en stefnir að því að keppa á EM 22 ára og yngri næsta sumar. „Ég tel að það sé raunhæft markmið fyrir mig,“ segir hún þrátt fyrir að alþjóðleg samkeppni sé gríðarlega mikil í spretthlaupum. „Það segir sig sjálft að það er erfitt að vera hvít kona í spretthlaupum en það er hægt. En tilfellið er einfaldlega að mér finnst mun skemmtilegra að hlaupa,“ segir hún. Arna Stefanía viðurkennir þó að það sé skrýtin tilhugsun að skipta um félag enda hefur hún æft í ÍR frá átta ára aldri. „Ég þekki þó marga í þessum heimi og veit að ég er ekki að fara að missa neina vini. Ég vona bara að ef fólk er ósátt tali það við mig í stað þess að baktala mig. Auðvitað eru einhverjir ÍR-ingar ósáttir en þá eru þeir ekki að hugsa um hvað þjóni mínum hagsmunum best. Oft er það þannig í þessari íþrótt að maður þarf að hugsa um sjálfan sig.“ Arna Stefanía klárar stúdentspróf í vor og stendur því á ákveðnum tímamótum, bæði í skólagöngu og á íþróttaferli. „Ég hef verið að velta því lengi fyrir mér hvernig ég eigi að skipuleggja næstu ár hjá mér. Ég mun láta reyna á þetta næstu tvö árin hið minnsta en ef það gengur ekki hjá mér getur vel verið að ég fari að einbeita mér að einhverju öðru,“ segir Arna Stefanía en áður hefur verið bent á að margt efnilegt íþróttafólk ákveði á þessum tímapunkti að helga sig frekar náms- eða starfsferli sínum en að freista þess að gerast afreksmaður í sinni íþrótt. „Það kemur til greina að byrja strax í háskólanámi en ég væri líka til í smá frí til að geta einbeitt mér að íþróttinni. En þá þyrfti ég að vinna með,“ segir hún og bætir við að hún þyrfti myndarlega styrki til að geta helgað sig frjálsíþróttunum. Hingað til hefur hún meðal annars þurft að stóla á stuðning fjölskyldu sinnar. „Ég á góða fjölskyldu sem hefur stutt mig. Ég hef til dæmis ekki getað fjármagnað æfingaferðirnar mínar sjálf,“ segir hún en Arna Stefanía hefur undanfarin ár verið að fara í 2-3 æfingaferðir út fyrir landsteinana. „En ég held að ég fari bara í eina núna.“Uppfært 12.45: Arna Stefanía vildi koma eftirfarandi á framfæri, eins og lesa má nánar um hér.Arna Stefanía vildi leggja áherslu á að með ummælum sínum um að það sé erfitt fyrir hvítar konur að ná árangri í spratthlaupum hafi hún einvörðungu verið að vísa til þess að gríðarleg alþjóðleg samkeppni ríkir í spretthlaupum og að þar hafi þeldökkir hlauparar haft mikla yfirburði síðustu áratugina.„Ég meinti ekkert illt með þessum ummælum og var frekar að hrósa árangri þessa góða íþróttafólks sem hefur skarað fram úr í spretthlaupum á heimsvísu undanfarin ár,“ segir hún.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Körfubolti Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Fótbolti „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Enski boltinn Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Körfubolti Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Körfubolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Leik lokið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Stjörnukonur jöfnuðu metin Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Ísland fékk sínu ekki framgengt: Rússar mega sigla undir hlutlausum fána Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Ágúst Íslandsmeistari í fyrsta sinn og Thelma fagnaði fimmta titlinum Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Hleypur um nakinn ef hann vinnur Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur City og Arsenal í enska og oddaleikur í Bónusdeildinni Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Sjá meira