Elín Metta með tvö mörk þegar 23 ára stelpurnar unnu A-landslið Póllands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2015 19:57 Elín Metta Jensen. Vísir/Daníel
Íslenska 23 árs landsliðið vann 3-1 sigur á A-landsliði Póllands í vináttulandsleik í Kórnum í kvöld en fjórir eldri leikmenn spiluðu með íslenska liðinu í leiknum. Valskonan Elín Metta Jensen skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið í fyrri hálfleiknum og varamaðurinn Katrín Ásbjörnsdóttir bætti við þriðja markinu í seinni hálfleiknum. Þetta er annar leikur 23 ára landsliðsins frá upphafi en 23 ára liðið gerði 2-2 jafntefli við Skotland sumarið 2012. Elín Metta skoraði líka í þeim leik. Elín Metta Jensen skoraði mörkin sín á 18. mínútu og 27. mínútu, fyrra markið eftir undirbúning Guðmundu Brynju Óladóttur en það síðara eftir misheppnaða sendingu varnarmanns pólska liðsins aftur til markvarðar síns. Katrín Ásbjörnsdóttir kom inná sem varamaður á 62. mínútu og skoraði níu mínútum síðar eftir langa sendingu fram frá Önnu Maríu Baldursdóttur. Katrín lék á varnarmann og negldi boltanum óverjandi í pólska markið. Pólska liðið náði að minnka muninn sjö mínútum fyrir leikslok en Anna Zapala skoraði þá með frábæru skoti utan vítateigs.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira