HSK/Selfoss langbest á meistaramóti krakkanna i frjálsum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2015 12:45 Glæsilegur hópur hjá HSK/Selfoss.
Það er greinilega verið að gera frábæra hluti í frjálsum íþróttum á Suðurlandinu því sveit HSK/Selfoss vann yfirburðarsigur í stigakeppni félaga á Meistaramótinu í frjálsum hjá 11 til 14 ára sem fram fór í Laugardalshöll um helgina. Sveit HSK/Selfoss fékk samtals 808 stig eða næstum því tvöfalt meira en næsta félag sem var FH með 420 stig. ÍR varð síðan í þriðja sætinu með 368,58 stig. Alls voru 520 persónuleg met sett á mótinu sem eru mjög góðar fréttir fyrir okkar framtíðarfólk í frjálsum íþróttum. Í flokki 11 ára pilta sigraði FH með 90,50 stig en Breiðablik varð í 2. sæti með 85,33 stig. Í flokki 12 ára pilta sigraði HSK/Selfoss með 74 stig en ÍR var í 2. sæti með 65,33 stig. Í flokki 13 ára pilta sigraði HSK/Selfoss með afgerandi yfirburðum með 222 stig, en UFA varð í öðru sæti með 43 stig. Lið UFA sigraði síðan í flokki 14 ára pilta með 111 stig á móti HSK/Selfossi sem hlaut 81 stig. Í stúlknaflokki, 11 ára fengu FH-ingar flest stig eða 103,5 á móti 60 stigum HSK/Selfoss, sem sigraði síðan í flokki 13 ára stúlkna með 116,75 stig en Breiðablik var þar í öðru sæti með 62 stig. Í flokki 14 ára stúlkna bar sveit ÍR sigur úr býtum með 145,5 stig á móti 76 stigum HSK/Selfoss.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Í beinni: Celta Vigo - Barcelona | Börsungar vilja svara fyrir tapið síðast Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ „Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“ Dagskráin í dag: Knicks ásamt íslenskum körfubolta og íslenskri pílu Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Sjá meira