Michael Jordan er orðinn milljarðamæringur Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. mars 2015 20:30 Michael Jordan á fyrir nóg af salti í grautinn. vísir/getty
Michael Jordan er formlega orðinn milljarðamæringur, en hann er á 29. lista Forbes-tímaritsins yfir milljarðamæringa heimsins í dag. Jordan er langt frá efsta sætinu, en samkvæmt Forbes-listanum er hann í 1.741 sæti. Hann er metinn á sléttan milljarð dala eða 133 milljarða króna. Talið er að Jordan græði 100 milljónir dala árlega á fatalínu sinni Nike Air Jordan þó viðskiptastjóri hans hafi aldrei viðurkennt það. „Við tjáum okkur ekki um þessar ágiskanir Forbes,“ segir Estee Portnoy, sem sér um fjármál Jordans, við ESPN. Jordan keypti 80 prósent hlut í NBA-liðinu Charlotte Bobcats árið 2010 sem þá var metið á 275 milljónir dala. Hann á nú 89 prósent í liðinu sem hefur breytt nafninu aftur í Charlotte Hornets. Það er í dag metið á 700 milljónir dala. Michael Jordan er langt frá því að vera ríkasti eigandi íþróttaliðs í heiminum í dag. Sá ríkasti er Steve Ballmer, fyrrverandi framkvæmdastjóri Microsoft, en hann á Los Angeles Clippers. Hann er metinn á 21,5 milljarð dala og er 35. ríkasti maður heims. Gamall félagi hans úr Microsoft, Paul Allen, sem á NFL-liðið Seattle Seahawks og NBA-liðið Portland Trail Blazers, er metinn á 17,5 milljarða dala og er 51. ríkasti maður heims. Þriðji ríkasti liðseigandinn er Phil Anshutz. Hann á NHL-liðið Los Angeles Kings og MLS-liðin LA Galaxy og Houston Dynamo. HAnn er metinn á 11,8 milljarði dala.Í frétt ESPN má sjá aðra forríka menn sem eiga íþróttalið en þar koma fyrir ríkisbubbar á borð við Roman Abramocih og Stan Kroenke.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira