Nú þegar sumarið gengur í garð þá ber að fagna komu ferskra berja.
Bláber eru góð uppspretta C-vítamíns og trefja.
Þó enn sé smá tími í innlenda berjatýnslu þá er hægt að fá urmul af bláberjum, og öðrum gómsætum berjum, í matvöruverslunum en ekki er verra að geyma þessa girnilegu uppskrift fyrir berjatýnslu þegar nær dregur sumarlokum.
Fyrir ykkur sem enn eigið birgðar frá seinasta sumri inni í frysti þá er vissara að láta þau þiðna áður en þeim er skellt í safann.
Ef þú kaupir ferska myntu plöntu þá getur þú umpottað henni og haldið í henni lífi áfram inni við stofugluggann.
Hráefni:
1 og 1/2 bolli af bláberjum (ef notar frosin, láttu þau þá þiðna)
1/2 bolli kókosmjólk
1 msk ferk myntulauf
1 tsk ferskur lime safi (mátt alveg setja góða skvettu)
1 tsk hunang (ef vilt hafa sætari, settu þá ögn meira)
Aðferð:
Hentu svo öllu í blandarann og nokkra klakamola með og maukaðu saman.