Viking fékk skell Anton Ingi Leifsson skrifar 5. júlí 2015 15:13 Indriði Sigurðsson spilaði allan leikinn í vörn Viking í dag. vísir/viking-fk.no
Viking mistókst að koma sér nær toppsætunum tveimur í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en liðið tapaði á útivelli gegn Strømsgodset. Viking fékk óskabyrjun því Suleiman Abdullahi kom þeim yfir eftir fjögurra mínútna leik. Adam var ekki lengi í paradís því eftir stundarfjórðung var staðan orðin 2-1, Strømsgodset í vil. Marvin Ogunjimi jafnaði á tíundu mínútu og fimm mínútum síðar mætti Marvin við öðru marki sínu og staðan 2-1 eftir stundarfjórðung. Fjörug byrjun. Bismarck Adjei-Boateng, leikmaður Strømsgodset, lét reka sig útaf undir lok fyrri hálfleiks, en staðan Strømsgodset var 2-1 yfir í hálfleik. Eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik var staðan orðin 3-1 fyrir Strømsgodset, en Gustav Wikheim skoraði þá þriðja mark heimamanna. Heimamenn voru ekki hættir því einum færri bættu þeir við fjórða markinu, en það gerði Lars-Christopher Vilsvik tólf mínútum fyrir leikslok. Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 4-1 sigur heimamanna. Með sigri hefði Viking verið í þriðja sætinu, einungis tveimur stigum frá Stabæk í öðru sætinu, en þess í stað eru þeir í fjórða sæti með 25 stig, fimm stigum frá öðru sætinu. Strømsgodset er í því sjötta. Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson spiluðu allan leikinn fyrir Viking, en Steinþór Freyr Þorsteinsson kom inná sem varamaður á 71. mínútu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira