Gunnar Ingi Gunnarsson, yfirlæknir á Heilsugæslunni í Árbæ, sendi bréf til starfsmanna heilsugæslunnar í aðdraganda verkfalls ritara stöðvarinnar. Hvatti hann starfsmenn til að virða verkfallsrétt stéttarinnar alveg eins og var gert þegar læknar og hjúkrunarfræðingar fóru í verkfall. Þá var bara bráðatilfellum sinnt en nú fær fólk sem á bókaðan tíma í flestum tilfellum fulla þjónustu. Yfirstjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur sent frá sér leiðbeiningar til starfsmanna um vinnufyrirkomulag til að starf heilsugæslunnar laskist ekki.
Í bréfi sínu til lækna, hjúkrunarfræðinga og móttökuritara Heilsugæslunnar í Árbæ segir Gunnar Ingi að líkt og í verkfalli lækna og hjúkrunarfræðinga muni Heilsugæsla Árbæjar bara sinna neyðartilfellum á þeim tíma sem félagsmenn SFR verða í verkfalli. „Næstum óbreytt móttaka sjúklinga […] gerir verkfall SFR að ömurlegum sýndarveruleika í starfsemi HH,“ segir í bréfinu.
Vegna bréfsins hefur Gunnari Inga borist formlegt bréf frá HH um að vegna háttalags og framgöngu hans verði gripið til „viðeigandi úrræða“. Hann er sagður hafa brugðist starfsskyldum sínum í þágu stofnunarinnar og ekki farið eftir fyrirmælum.
Gunnar Ingi fær frest þar til á morgun til að svara. Þá tekur stofnunin ákvörðun um hvort honum verði veitt skrifleg áminning, sagt upp með tilskildum fresti eða rekinn án uppsagnarfrests.
Gunnar Ingi staðfestir að hann hafi fengið bréfið en vildi ekki tjá sig frekar að svo stöddu. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að annar yfirlæknir á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu hafi fengið sambærilegt bréf. Ekki náðist í Svanhvíti Jakobsdóttur, forstjóra HH, við vinnslu fréttarinnar.
Yfirlækni hótað uppsögn fyrir að styðja verkfall
Tengdar fréttir
Verkfallslotu lokið: Næsta verkfallslota 29. október takist ekki að semja
Kennsla verður með eðlilegu móti í Háskóla Íslands, starfsmenn á síma hjá Vegagerðinni og Útlendingastofnun mæta aftur til vinnu og sjúkraliðar snúa til starfa í dag.
Heilsugæslan sögð sýna stéttinni fádæma virðingarleysi
Ágreiningur er á milli SFR og Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu um hvað felist í undanþágu–lista móttökuritara.
SFR, sjúkraliðar og lögreglumenn gengu fylktu liði: „Við létum slagorðin glymja yfir allt Stjórnarráðið“
Hnútur kom á kjaraviðræðurnar í gær og segir formaður SFR hópinn ef til vill hafa mætt of bjartsýnan til viðræðna.