Ásmundur hvetur þjóðina til að hætta viðskiptum við Símann
Viðskiptavildarvinir Arion banka fengu þá að kaupa 5 prósent hlut í Símanum áður en almennt útboð fór fram á mun lægra verði en var svo sett í útboðinu.
Þingmaðurinn sagði það gott að Arion banki hefði viðurkennt að hafa gert mistök í málinu en sagði „skítastuðulinn vera kominn upp í öll rjáfur“ hjá Símanum, líkt og fyrir hrun, sem ekki hefði ekki gert slíkt hið sama.
Sagði Ásmundur að þörf væri á þjóðarsókn gegn spillingu og hvatti Alþingi til að hætta viðskiptum við Símann. Þá hvatti þingmaðurinn auk þess alla þjóðina til að hætta viðskiptum við fyrirtækið en sjálfur ætlar hann að gera það.
Að lokinni ræðu hans árettaði Einar K. Guðfinnsson, þingforseti, að þingmenn ættu að gæta orða sinna í ræðustól Alþingis.
Tengdar fréttir
Bankastjóri Arion banka segir gagnrýnina skiljanlega
Rúmlega sex hundruð tuttugu og tveggja milljóna króna velta var með hlutabréf Símans á fyrsta degi félagsins á markaði. Forstjórar bæði Símans og Arion banka segjast sáttir við hvernig staðið var að málum.
Arion banki: Óheppilegt að selja til valinna viðskiptavina á lægra gengi skömmu fyrir útboð
Bankinn mun taka gagnrýni á sölu bankans á hlut sínum í Símanum til greina en telur að verðlagning sí hafi verið réttmæt.
„Geta tæplega verið heilbrigðir og eðlilegir viðskiptahættir“
Guðlaugur Þór Þórðarson vill að Fjármálaeftirlitið skoði sölu Arion banka á hlutum í Símanum til handvalinna viðskiptavina.
Í fjórða sinn sem Arion selur vildarviðskiptavinum fyrir skráningu
Arion banki hefur fjórum sinnum selt hlutabréf á lægra gengi stuttu áður en félag er skráð á markað. Bankinn gerði þetta í tilviki Haga, Eikar, Reita og nú í tilviki Símans.
„2007 siðmengunin sem er að læðast aftan að okkur á fullri ferð“
Steingrímur J. Sigfússon segir viðskipti Arion banka með fasteignir og Símahluti gefa tilefni til að aðskilja viðskiptabanka- og fjárfestingabankastarfsemi.