Ronaldo gekk út af blaðamannafundi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. febrúar 2016 07:39 Ronaldo var ekki sáttur með spurningar blaðamanna í gær. vísir/getty
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, var eitthvað illa fyrir kallaður á blaðamannafundi í gær. Ronaldo var þá spurður út í markaþurrð sína á útivelli að undanförnu en Portúgalinn hefur ekki skorað útivallarmark frá því í nóvember. „Nefndu mér einn leikmann sem hefur skorað meira á útivelli síðan ég kom til Spánar,“ sagði Ronaldo ákveðinn. „Nefndu mér einn. Þú getur það ekki,“ bætti portúgalska stórstjarnan við áður en hann gekk út af blaðamannafundinum. Ronaldo hefur skorað 21 mark á heimavelli á tímabilinu og ellefu á útivelli. Og raunar hefur hann aðeins spilað fjóra leiki á útivelli frá því hann skoraði síðasta útivallarmark sitt gegn Eibar 29. nóvember síðastliðinn. Ronaldo verður væntanlega í eldlínunni þegar Real Madrid sækir Roma heim í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.Leikur Roma og Real Madrid hefst klukkan 19:45 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá verður einnig hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Í beinni: Fram - Þór/KA | Framarar geta unnið þriðja leikinn í röð Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó