Internetið og jafnrétti kynjanna Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar 8. mars 2016 10:15 Konur hafa sannarlega náð miklum árangri með jafnréttisbaráttu sinni síðustu 100 árin og á alþjóðlegum baráttudegi kvenna er hollt að minna sig á að stutt er síðan að konur fengu rétt og tækifæri til að mennta sig, vinna a.m.k. lagalega séð fyrir sömu laun og karlar, kjósa, bjóða sig fram til trúnaðarstarfa, eiga eignir og tjá skoðanir sínar. Allt eitthvað sem okkur lang flestum finnst svo sjálfsögð réttindi að við eigum það til að gleyma hvað það er stutt síðan samfélagið okkar snérist nær eingöngu um karla og þeir tóku ákvarðanir um og fyrir konur. Konur hafa breytt samfélaginu til góðs því með auknu jafnrétti verður til sterkara og betra samfélag. Þegar internetið kom til sögunnar héldu margir því fram að þar væri kominn fram vettvangur sem mundi styðja við jafnrétti enda væru þar allir jafnir og kynþáttur, kyn eða hvað annað sem samfélög heimsins nota til að greina fólk í sundur væri ekki til staðar. Þannig mundi internetið frelsa konur frá líkömum sínum því konur gætu nýtt menntun sína og þekkingu og sýnt að konur hafa jafn mikið til málanna að leggja og karlar. Í fyrirlestri sem Dr. Mary Anne Franks hélt á ráðstefnu í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna í október í fyrra kom fram að þrátt fyrir góðar fyrirætlanir í upphafi þá hefur internetið þróast með þeim hætti að í stað þess að stuðla að jafnrétti og jöfnuði manna á milli stuðlar það að því að viðhalda óréttlæti og ójöfnuði í heiminum. Líklega byggir það á því að þeir sem hafa mótað internetið eru hvítir millistéttar karlar, 90% af tæknimönnum bakvið internetið og 96% stjórnenda eru karlar og þeirra viðhorf og sjónarhorn hefur því mótað þá ramma um samskipti sem búnir voru til. Það er mikilvægt að muna að internetið byggir á þeim gildum og hugsunum þeirra manna og ríkisstjórna sem komu að mótun þess, hvað þeim fannst eðlilegt, hvernig samskipti eru eðlileg, hvað fólk á að hafa frelsi til að tjá og birta og viðheldur þar með ekki bara gömlum valdastrúrktúr heldur skapar ný tækifæri til kúgunar og ofbeldis á ýmsum sviðum. Intenetið varð ekki bara til, það var búið til og það er lykilbreyta í öllum nútímasamfélögum. Rúm 42,4% jarðarbúa nota internetið og á Íslandi er talan um 95 %. Á hverri mínútu eru fleiri en 4 milljón atriði googluð í heiminum, 2,5 milljón nýjar færslur á facebook, 300þúsund ný tíst á twitter, 220 þúsund myndir eru settar inn á Instagram, 72 klukkustunda efni er hlaðið inn á youtube og yfir 200 milljón tölvupóstar eru sendir. Í heiminum hafa 200milljón fleiri karlar en konur hafa aðgang að internetinu og þrátt fyrir að kynjahlutföllin séu nokkuð jöfn hér heima virðist það sama eiga við varðandi hvernig kynin birtast á netinu. Misrétti gegn konum hefur viðgengist lengi og leið kynjakerfisins til að viðhalda gömlu valdaójafvægi hefur meðal annars verið kynbundið ofbeldi. Slíkt ofbeldi hefur nú fundið sér nýjar leiðir inn á internetið með tilkomu hrellikláms og dreifingar á klámi sem gengur út á að misþyrma og niðurlægja konur. Skaðinn sem þetta veldur konum er ekki viðurkenndur sem alvarlegur og þeim jafnvel kennt um, þeir sem birta nektarmyndir af konum án þeirra samþykkis eru sjaldan ákærðir eða sakfelldir og ekki heldur þeir sem búa til síður sem ætlaðar eru fyrir slíkar myndbirtingar. Í fyrirlestir Mary Anne Franks kom fram að þúsundir heimasíðna eru til á netinu þar sem fólk getur farið inn og deilt myndum eða skoðað myndir sem skilgreina má sem hrelliklám og að 9 af hverjum 10 myndum sem birtast eru af stelpum eða konum. Oftast eru myndirnar tengdar upplýsingum um nafn, aldur, símanúmer, tölvupóstfangi, og jafnvel skóla eða heimilisfangi. Rannsókn sýndi að allt að 10% fólks hótar að birta nektarmyndir af af kærustu eða maka sínum og 60% af þeim birtir myndirnar. Þegar myndin er komin á netið er nánast ógjörningur að taka hana til baka og þar til síðastliðið sumar var hægt að nálgast allar myndir með því að googla viðkomandi. Nú hafa Google, Twitter og Facebook tekið sig til og rutt brautina fyrir réttindum þolenda með því að viðurkenna ábyrgð sína á því sem birtist á þeirra vefsvæðum og taka út myndir af einstaklingum ef óskað er eftir því. Þeim ber þó ekki lagaleg skylda til þess og leysa í raun ekki vandamálið sem er annars vegar að fólk er að dreifa myndunum og hins vegar að það eru til sérstakar síður sem eru til þess gerðar og lög virðast ekki ná utanum það. Því er hrelliklám stórt og vaxandi vandamál sem gengur meira og minna út á að niðurlægja aðra og það mun ekki hverfa nema að við tökum höndum saman og stoppum það. Áhrif hrellikláms á samfélagið eru grafalvarleg því að smám saman verður það eðlilegt að birta nektarmyndir af fólki án samþykkis, hóta því að birta slíkar myndir og að kynlíf snúist um völd yfir öðrum og að það sé í lagi að niðurlægja fólk sér til skemmtunar. Áhrifin á þolendur ofbeldisins eru þau að þetta þaggar niður í konum sem ekki vilja taka áhættuna að verða fyrir barðinu á hrelliklámi og láta því lítið fyrir sér fara því fylgi þær ekki reglum karlanna eiga þær þetta á hættu. Þarna er því komið tæki sem hefur áhrif á réttindi kvenna og tækifæri þeirra til að láta að sér kveða í samfélaginu. Konur sem verða fyrir þessu ofbeldi láta sig hverfa, hætta í skóla, vinnu og konur hafa tekið líf sitt vegna myndbirtinga. Á síðasta ári kröfðust ungar konur þess að samfélagið stæði með þeim þegar þær þustu út á samfélagsmiðla og götur berbrjósta undir #freethenipple myllumerkinu. Þær ætla ekki að láta bjóða sér þetta og við sem samfélag eigum að standa með þeim. Við verðum að gera sömu kröfur um jafnrétti og mannréttindi á internetinu og í öðrum mikilvægum þáttum samfélags okkar. Hrelliklám, kynbundið ofbeldi eða mismunun kynjanna má ekki verða eðlilegur veruleiki í netheimum frekar en annarsstaðar og við þurfum að vera óhrædd við að takast á við þar verkefni, hvort sem við nýtum til þess fræðslu, lagasetningu eða breyttar leikreglur á internetinu. Jafnrétti kynjanna þarf að gilda allstaðar, alltaf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heiða Björg Hilmisdóttir Mest lesið Óvelkomnar alls staðar Kristín Davíðsdóttir Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Vindorkuvæðing í skjóli nætur Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvelkomnar alls staðar Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Samstillt átak um öryggi Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins skrifar Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson skrifar Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal skrifar Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Jafnréttisstofa í 25 ár: Er þetta ekki komið? Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Hvar er textinn? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Berklar, Krakk og Rough Sleep Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Blóðugar afleiðingar lyga Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin samfélagið á heimili í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhrif Vesturlanda og vöxtur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Alvöru fjárlög fyrir venjulegt fólk Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafa börn frjálsan vilja? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvers vegna halda Íslendingar með Dönum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað varð um þinn minnsta bróður? Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til að verða bergnuminn Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Þriðja leiðin í námsmati stuðlar að snemmtækri íhlutun Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Alma D. Möller skrifar Skoðun Hækkun skrásetningargjalds – Segjum sannleikann Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar Sjá meira
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun
Skoðun Samstillt átak um öryggi Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar
Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar
Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun