Ósáttur Atletico-maður: Óttast það að Barcelona verði slegið út úr Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2016 09:15 Filipe Luis í baráttu við Lionel Messi í leiknum í gær. Vísir/Getty
Filipe Luis, varnarmaður Atletico Madrid, er einn af mörgum leikmönnum síns liðs sem gagnrýndu frammistöðu dómarans í 2-1 tapi liðsins á móti Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Atletico Madrid komst í 1-0 í leiknum en missti svo framherja sinn og markaskorara, Fernando Torres, af velli með tvö gul spjöld með nokkurra mínútna millibili. Luis Suarez skoraði síðan tvö mörk í seinni hálfleiknum og tryggði Barcelona 2-1 sigur.Sjá einnig: Suarez hetja Barcelona Luis Suarez sjálfur var heppinn að sleppa við refsingu áður en hann skoraði þegar hann virtist sparka til Atletico-mannsins Juanfran. „Ég veit ekki hvað Barcelona-leikmenn þurfa eiginlega að gera til að fá rauða spjaldið eins og við," sagði Brasilíumaðurinn Filipe Luis.Sjá einnig:Torres reiður: UEFA hefur meiri áhuga á búningamálum en hæfum dómurum „Við áttum ekki að fá þetta rauða spjald. Það var fullkomlega ósanngjarnt. Það er ekki auðvelt að spila á móti Barcelona. Við vitum að menn vilja ekki að Barcelona detti út úr átta liða úrslitunum. Við erum að spila á móti öllum og öllu," sagði Filipe Luis. „Við greinum það að það er ótti um að Barcelona verði slegið út úr Meistaradeildinni," sagði Filipe Luis. Seinni leikur liðanna verður á Vicente Calderon, heimavelli Atletico Madrid, á miðvikudaginn kemur. „Það verður erfitt fyrir okkur í seinni leiknum. Við erum samt enn á lífi og það er því möguleiki," sagði Filipe Luis.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum Handbolti Stórundarleg hegðun O'Sullivans Sport Fleiri fréttir Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Arnar fundar með KSÍ Freyr til Noregs í viðræður og Högmo tekinn við Molde Sjáðu sigurmark Bergvall gegn Liverpool Maguire tvisvar tekinn fyrir hraðakstur á þremur dögum Hljóp beint í fang systur sinnar eftir að hafa haldið hreinu gegn Liverpool Gerði grín að gagnrýni Arteta á boltann Jón Daði á báðum áttum en opinn fyrir heimkomu Fyrrum vonarstjarna Rússa lést á víglínunni í Úkraínu Van Dijk: Átti augljóslega að vera hans annað gula spjald Sjá meira