Án hjálpar þarf að fækka ferðamönnum
Heilbrigðisnefnd HNE ályktaði vegna mengunarvanda Mývatns á þriðjudag. Þar er eindregið mælst til að stjórnvöld veiti Skútustaðahreppi nú þegar fjárhagslegan stuðning vegna kostnaðar við byggingu á hreinsivirkjum fyrir skólp í Skútustaðahreppi, og vísar til kröfu um ítarlega skólphreinsun skv. reglugerð um verndun Mývatns og Laxár.
„Um er að ræða mjög kostnaðarsamar og íþyngjandi kröfur fyrir fjárhag lítils sveitarfélags og jafnframt felast miklir hagsmunir og ábyrgð í því að vernda Mývatn sem náttúruperlu á heimsvísu. Heilbrigðisnefnd minnir á mikilvægi þess að hraða úrbótum í fráveitumálum í Skútustaðahreppi eins og kostur er, þannig að ekki þurfi að koma til þess að takmarka fjölda ferðamanna á vatnasvæði Mývatns,“ segir í bókuninni.
Alfreð segir að eins og staðan er nú sé aðeins eitt hótel á svæðinu með fullkomna hreinsun og mæti kröfum – Hótel Laxá, nýjasta hótelið við vatnið. „Öll önnur hótel og önnur gistiaðstaða uppfyllir ekki þessi skilyrði, og að óbreyttu verður ekki annað séð en þau verði að leggja niður starfsemi sína. Gróft sagt er bara eitt löglegt gistiúrræði í Mývatnssveit,“ segir Alfreð og bætir við að miklar vonir séu bundnar við að eftir að samráðshópur Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra skilar af sér 17. júní, þá „í beinu framhaldi af því sjái ríkisvaldið að sér og komi með myndarlegum hætti að borðinu“.
Hér vísar Alfreð til orða umhverfisráðherra á Alþingi í vikunni þar sem Sigrún tilkynnti um viðbrögð stjórnvalda við þeim djúpstæða vanda sem kominn er upp við Mývatn – en á sér alllanga sögu eins og Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, hefur skýrt.
Á þinginu kom fram þverpólitískur vilji til þess að stjórnvöld brygðust tafarlaust við, og sú krafa að tafarlaust kæmi til fjárveiting til handa Skútustaðahreppi til að hefja umbætur á fráveitumálum sveitarfélagsins – einum af þeim þáttum sem mannshöndin getur sannarlega haft áhrif á í hinu flókna samspili sem sambúð manns og náttúru er við Mývatn.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. maí
Tengdar fréttir
Skora á ríkisstjórnina að koma Mývatni til bjargar
Landvernd vil að gripið verði til aðgerða og Skútustaðahreppur aðstoðaður fjárhagslega í fráveitumálum.
Stjórnvöld bregðist við ástandinu í Mývatni
Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis telur að stjórnvöld verði að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin í lífríki Mývatns . Nefndin fundaði í morgun með sérfræðingum og sveitarstjórnarmönnum á svæðinu.
Mývatn er prófsteinn á nýja löggjöf
Ný náttúruverndarlög virðast skuldbinda stjórnvöld til að bregðast tafarlaust við grafalvarlegu ástandi í lífríki Mývatns en óhemju magn blábaktería er í vatninu.
Vilja aðgerðir í Laxá og Mývatni
Veiðifélag Laxár og Krákár segir ástand lífríkis alvarlegt.
Þingheimur krefst aðgerða við Mývatn
Þingmenn allra flokka á Alþingi lýstu yfir skýrum vilja sínum um aðgerðir til að bregðast við ófremdarástandi við Mývatn. Fjármagns er krafist til að aðstoða Skútustaðahrepp við fráveitumál. Umhverfisráðherra sammála en vísar