Hörður Björgvin getur núna farið að einbeita sér að EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2016 20:25 Hörður Björgvin Magnússon í baráttu um boltann í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Hörður Björgvin Magnússon og félagar hans í Cesena eru úr leik í umspilinu um laust sæti í ítölsku A-deildinni í fótbolta eftir tap á heimavelli sínum í kvöld. Spezia, sem varð einu sæti neðar í töflunni og á útivelli í kvöld, vann leikinn 2-1. Fyrra mark Spezia var sjálfsmark en það síðara skoraði varamaðurinn Sergio Postigo fimm mínútum fyrir leikslok. Camillo Ciano skoraði eina mark Cesena í leiknum en það skoraði hann úr vítaspyrnu á 65. mínútu og jafnaði þar með leikinn í 1-1. Liðsfélagi hans og Harðar Björgvins, Francesco Renzetti, hafði skoraði sjálfsmark fimm mínútum fyrir hálfleik og komið Spezia í 1-0. Spánverjinn Sergio Postigo kom inn á sem varamaður í seinni hálfleiknum og skoraði sigurmarkið á 85. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn í liði Cesena. Hann þekkir vel til í herbúðum Spezia því hann var lánaður til liðsins frá Juventus tímabilið 2013-2014 og lék þá 20 leiki með því í b-deildinni. Cesena-liðið komst þar með ekki í undanúrslitin og eru leikmenn liðsins þar með komnir í sumarfrí. Allir reyndar nema einn því Hörður Björgvin Magnússon var valinn í EM-hóp Íslands og er á leiðinni til Íslands til móts við aðra í íslenska hópnum.
EM 2016 í Frakklandi Ítalski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Sjá meira