Andstæðingar skattaundanskota óskast í þingsal Kristófer Már Maronsson skrifar 23. desember 2016 16:07 „Reykjavík er okkar, já hún er okkar. Reykjavík er okkar, já hún er okkar.“ Það vill svo skemmtilega til að með autt Google Docs skjal að reyna að finna skemmtilega byrjun á pistlinum var ég að hlusta á stórsmell Emmsjé Gauta sem hann gaf út á árinu ásamt glæsilegu myndbandi sem sýnir nýtt sjónarhorn af okkar stórkostlegu höfuðborg. En er Reykjavík í raun og veru okkar? Ungt fólk í Reykjavík hugsa ég að sé ekki alveg sammála. Við erum að verða undir í alþjóðlegri samkeppni við ferðamenn svo við verðum að sætta okkur við gestaherbergið heima hjá mömmu og pabba - ef við erum svo heppin að það sé í boði. Aðrir borga hér himinháa leigu, en fá ekki greiðslumat á fasteignaláni sem ber lægri afborganir á mánuði heldur en leigan. Námslán duga varla fyrir leigu ef þú ert ekki á stúdentagörðum. Þvílíka vitleysan, ungt fólk er ekkert í samkeppni við ferðamenn - þeir gista á hótelum sem spretta upp eins og lúpínur um alla borg! Ef þessi misskilningur er ennþá til staðar hjá einhverjum, þá leiðréttist hann hér með. Í Reykjavík eru yfir 3.000 íbúðir til útleigu ferðamanna. Óvíst er með fjölda á Seltjarnarnesi, í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Kópavogi. Vissulega býr fólk örugglega í einhverjum af þessum 3.000 íbúðum og leigir út af og til - þegar það er ekki heima. Það er fullkomlega ásættanlegt og í raun frábært - að hægt sé að nýta íbúðina þegar fólk fer í frí eða upp í sumarbústað, svo lengi sem gjöldum og sköttum er skilað í samræmi við það. Þó áætlar Arion Banki að nýting sé yfir 60% í virkum íbúðum og má því áætla að í mörgum þessara íbúða sé eingöngu atvinnustarfsemi, á kostnað ungs fólks og fólks á leigumarkaði. Eins og ég benti á í pistli mínum á romur.is þá er bullandi ósamræmi í því að hjálpa ungu fólki að eignast fyrstu fasteign og nýjum lögum um heimagistingu, þar sem dauðafæri var til þess að auka framboð á húsnæðismarkaði sem er nauðsynleg mótvægisaðgerð við eftirspurnaraukninguna. Nú síðast berast fréttir af því að menn viti ekkert hvernig eigi að framfylgja þessum lögum, þau eru kannski ekkert sérstakt forgangsmál heldur bara til skrauts? Maður spyr sig. Á Íslandi greiða rúmlega 1.200 aðilar gistináttaskatt. Þá er ég að telja öll hótel, farfuglaheimili, tjaldsvæði á öllu landinu o.s.frv. auk einhverra heimagistingaraðila. Ef stærðfræðikunnáttan mín er í lagi þá eru það töluvert færri en eru með AirBnB bara í Reykjavík. Hér er augljóst að stórfelld skattaundanskot eru meginreglan frekar en undantekningin. Á ekkert að taka á þessu? Velta gististaða var 12,8% af heildarveltu ferðaþjónustunnar á Íslandi árið 2015. Er rétt að leysa gjaldtökuvandamál ferðaþjónustunnar með þessum litla kima greinarinnar? Samkvæmt greiningardeild Arion Banka gista fleiri í óskráðri gistingu heldur en á hótelum. Nei, þreföldum gistináttagjald og aukum þar með hvatann til skattaundanskota, refsum löglegri starfsemi og höldum uppi svartri starfsemi. Það er nánast einróma sátt um það, 55 sögðu já á meðan enginn mótmælti. Þið standið ykkur vel í fyrstu fjárlögum kæra Alþingi. Leyfið mér að setja þennan vanda betur upp fyrir ykkur. Ef þú værir að vinna fullt starf í fiskvinnslu og aðilinn við hliðina á þér líka en hann væri að vinna svart, því það er allt í lagi. Látum sem annarhver maður í fiskvinnslunni sé að vinna svart, þá erum við komin með svipaða mynd og er í Reykjavík á gististöðum. Finnst þér sanngjarnt og réttlátt að þú farir að borga meiri skatta og gjöld svo hinn aðilinn gæti haldið àfram að vinna svart, af því að það er svo erfitt að fá þá sem borga ekki til að borga? Ef það er vilji til að hægja á hraðri aukningu ferðamanna til Íslands þà eiga stjórnvöld að taka à svartri starfsemi sem er svo yfirgengilega mikil að það er út í hött að skoða nokkrar aðrar leiðir á meðan. Ég legg til tvær lausnir. Í fyrsta lagi skulum við hverfa frá gistináttagjaldi þangað til að fjöldi skráðra kennitalna hjá ríkisskattstjóra endurspeglar alla aðila markaðarins, stóra sem smáa, hvíta sem svarta. Þá er ég að tala um að öll hótel landsins séu skráð, Airbnb og Homeaway fara að innheimta gistináttagjald og upplýsingum til ríkisins, sem frændur okkar í Danmörku eru þó í basli með. Það væri einnig betra að sýslumenn myndu finna út úr því hvernig ætti að framfylgja lögunum. Þá getum við farið að tala saman. Í öðru lagi skulum ræða saman um komugjöld þangað til, það er ekki mikið um svartan flutning fólks til landsins og með komugjöldum þá náum við einnig skemmtiferðaskipunum, sem greiða auðvitað ekki gistináttagjald en það koma yfir hundrað þúsund farþegar árlega með þeim. Einnig ætti að skoða vegatolla og bílastæðagjöld á fjölförnum stöðum. Í guðanna bænum hækkið svo sektirnar fyrir brot, það er nánast hagkvæmt að brjóta lögin því tekjurnar verða hærri en sektin. Við skulum gera þetta málefnalega kæru alþingismenn, ég veit þið vinnið erfitt starf og enginn er fullkominn. Við skulum þó hætta að gera skattaundanskotum hátt undir höfði, ég held að við ættum öll að vera sammála um það. Eru einhverjir andstæðingar skattaundanskota í þessum blessaða þingsal? Það sem birtist hér að ofan eru persónulegar skoðanir höfundar en endurspegla ekki skoðanir vinnuveitanda hans né annarra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar