Innlent

Einn hinna handteknu ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í Mosfellsdal á miðvikudagskvöld.
Frá vettvangi í Mosfellsdal á miðvikudagskvöld. vísir/eyþór
Sveinn Gestur Tryggvason, einn hinna sex sem grunaðir eru um aðild að manndrápi í Mosfellsdal á miðvikudagskvöld, sætir ákæru vegna stórfellds fíkniefnabrots á árinu 2014.

Ákæran var gefin út í október í fyrra en aðalmeðferð málsins mun fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember næstkomandi. Ákæran er ítarleg og í mörgum hlutum en alls voru níu manns ákærðir fyrir meðal annars stórfelld fíkniefnalagabrot og/eða brot á tolla-og lyfjalögum.

Sveinn Gestur er ákærður í 3. og 4. hluta ákærunnar. Annars vegar sætir hann ákæru fyrir að hafa tekið við tæplega hálfu kílói af kókaíni á hóteli við Þórsgötu í miðbæ Reykjavíkur í nóvember 2014. Annar maður var einnig ákærður fyrir aðild að þessu broti, það er fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutninginn, en hann er látinn.

Hins vegar er Sveinn Gestur ákærður fyrir fíkniefnalagabrot fyrir að hafa haft í fórum sínum 0,05 grömm af ecstacy og 0,06 grömm af kókaíni sem lögregla fann við húsleit á heimili hans daginn eftir að hann var handtekinn á hótelinu í miðbænum.

Árið 2012 var Sveinn dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir tvær líkamsárásir sem hann framdi árið 2013.

Sveinn Gestur var náinn vinur Arnars Jónssonar Aspar sem lést á miðvikudagskvöld eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri árás af hendi Sveins og fimm annarra við heimili sitt að Æsustöðum í Mosfellsdal.

Frá því var greint í Fréttablaðinu í dag að Sveinn hafi hringt á Neyðarlínuna, kynnt sig með nafni og tilkynnt að senda þyrfti sjúkrabíl að Æsustöðum. Í símtalinu heyrist þegar Sveinn leggur símann frá sér og öskrar ókvæðisorð að Arnari um fíkniefnaskuld sem lá þá meðvitundarlaus á jörðinni.

Sveinn Gestur var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. júní.


Tengdar fréttir

Kaldrifjuð líkamsárás endaði í morði

Fjölskylda unnustu Arnars Jónssonar Aspar, sem var myrtur við heimili sitt á miðvikudag, gagnrýnir að hún hafi enga áfallahjálp fengið. Unnustan og aðrir fjölskyldumeðlimir urðu vitni að hrottafenginni árás sex manns sem leiddi til dauða Arnars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×