Stundin sektuð vegna búrkumynda af Arnþrúði á Útvarpi Sögu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júní 2017 13:10 Skjáskot af vef Stundarinnar þar sem fjallað var um búrkuklæðnað útvarpsstjórans í hljóðveri Útvarps Sögu í Nóatúni. Myndin er samsett.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjölmiðillinn Stundin þurfi að greiða Útvarpi Sögu 200 þúsund krónur vegna fimmtán birtinga á myndum af útvarpsstjóranum Arnþrúði Karlsdóttur á vef Stundarinnar. Útvarp Saga fór fram á 7,5 milljónir króna greiðslu en héraðsdómari sagði þá kröfu fráleita. Ritstjóri Stundarinnar segir Útvarp Sögu hafa sigtað miðilinn úr en fleiri miðlar hafi birt sömu myndir. Til skoðunar sé að áfrýja dómnum. Um er að ræða þrjár myndir í eigu Útvarps Sögu sem Stundin birti alls fimmtán sinnum. Var um að ræða fimm birtingar á mynd af Arnþrúði í búrku, sex portrett myndir af henni og fjórar portrett myndir af henni í hljóðveri. Myndirnar voru birtar á tímabilinu mars 2015 til júlí 2016. Útvarp Saga benti á að ekki hefði verið samið um þóknun fyrir fram og því væri farið fram á hæstu mögulegu þóknun úr hendi stefnanda. Krafðist útvarpsstöðin 500 þúsund króna fyrir hverja birtingu.Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ráða ríkjum á Útvarpi Sögu.Útvarp SagaGagnrýni á hatursáróður Stundin benti á að myndirnar hefðu verið birtar á Facebook-síðu Útvarps Sögu með „public“ stillingu og því hafi allir aðgang að þeim. Það leið af notendaskilmálum Facebook og þannig hafi Útvarp Saga heimilað öllum að nota efnið. Myndirnar hafi verið notaðar til að auglýsa efni útvarpsstöðvarinnar og birtar á Facebook án fyrirvara um að endurbirting eða deiling væri óheimil. Þá sé ekki skýrt hvernig Útvarp Saga geti verið rétthafi á umræddum ljósmyndum. Stundin vill meina að birting myndanna hafi verið liður í gagnrýni og umfjöllun um hegðun, háttsemi og umfjöllun á Útvarpi Sögu um þjóðfélagsmál og gagnrýni á hatursáróður. Notkun ljósmynda hafi þjónað almannahagsmunum, í heimildar- og upplýsingaskyni.Viðtekin venja Stundin benti á að fjölmiðlar birti myndir af starfsfólki og gestum á heimasíðum og Facebook-síðum til kynningar. Þar með megi aðrir fjölmiðlar endurbirta myndirnar. Það sé viðtekin venja í fjölmiðlum. Útvarp Saga hafi sjálf birt myndir annarra á Facebook-síðu sinni. Þær birtingar sanni þessa venju. Loks benti Stundin á tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Tilgangur umfjöllunar hafi verið að upplýsa almenning, varpa ljósi á hátterni þáttastjórnenda sem hafi hæðst að minnihlutahópnum.Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar.VísirFjárhæð stefnukröfu fráleit Dómarinn, Jón Finnbjörnsson, segir í niðurstöðukafla sínum að óumdeilt sé að Útvarp Saga sé eigandi myndanna. Tjáningarfrelsi heimili ekki brot á höfundalögum. Fjölmörg dómafordæmi séu þess efnis. Önnur rök Stundarinnar sló dómarinn útaf borðinu með vísun í lagaákvæði. Málsvörnin sem sneri að því að myndirnar hefðu verið birtar á Facebook var hafnað. Þá þótti Stundin ekki hafa sýnt fram á að endurgjaldslaus birting ljósmynda væri venja. Hún væri sömuleiðis ekki endursögn úr öðrum fjölmiðlum. Dómarinn féllst ekki á að í birtingu búrkumyndanna fælist haturrsáróður. Enginn munur væri á birtingu þeirrar myndar og hinna. Var öllum málsástæðum Stundarinnar hafnað og fallist á kröfu Útvarps Sögu, þó ekki hvað varðaði þóknunina. „Fjárhæð stefnukröfu er fráleit,“ segir í dómnum og vísað til 7,5 milljóna króna kröfu. Hafði dómarinn gjaldskrá Myndstefs til hliðsjónar og metið var til lækkunar að nokkrar myndanna voru birtar oftar en einu sinni. Myndirnar væru því færri en birtingarnar. Var þóknunin ákveðin 200 þúsund krónur. Þá segir dómarinn að Útvarp Saga vinni málið að forminu til en Stundin hefði ekki tapað því í öllu verulegu. Var ákveðið að málskostnaður félli niður.Tókst að valda kostnaði og skaða í allar áttir Ritstjóri Stundarinnar segir niðurstöðu dómsins vera slæm tíðindi fyrir opna umræðu í landinu. „Myndir af Arnþrúði Karlsdóttur í búrkulíki voru birtar víða, vegna þess að þær sýndu fram á tilraunir til að ala á útlendingaótta, enda hefur verið alið á ótta við múslima og fleiri minnihlutahópa í útsendingum stöðvarinnar,“ segir Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar. „Í samhengi við umræðu- og dagskrárstefnu Útvarps sögu skipti máli að koma því á framfæri hvað væri verið að boða þar. Það að ekki megi fjalla um slíkt án þess að þurfa að ganga í gegnum kostnaðarsöm dómsmál er ekki til marks um opið samfélag. Útvarp Saga fór fram á upphæðir fyrir myndbirtinguna sem var ómögulegt að fallast á, eða 7,5 milljónir króna.“ Fleiri fjölmiðlar hafi birt myndina af Arnrþrúði en Útvarp Saga aðeins valið að stefna Stundinni fyrir myndbirtinguna, engum öðrum. „Það virðist vera vegna gagnrýninna umfjallana Stundarinnar um það sem fer þarna fram. Tilgangurinn með málsókninni virðist hafa verið að valda skaða og með kröfu, sem héraðsdómur segir „fráleita“, var gert ómögulegt að fyrirbyggja málsókn. Málskostnaður, fyrir utan kostnað samfélagsins af tilhæfulausum málarekstri sem þessum, er margar milljónir króna. Vegna ljósmynda sem útvarpsstöðin var að senda frá sér til kynningar.“ Það segi sitt um niðurstöðuna að málskostnaðurinn sé látinn falla niður. „Greiðslan sem Útvarp saga fær dæmda nægir engan veginn fyrir málskostnaðinum. Þannig að ef tilgangurinn var að valda skaða og kostnaði, þá tókst það, í allar áttir.“ Stundin muni íhuga stöðu sína í framhaldinu með Sigríði Rut Júlíusdóttir, lögmanni miðilsins, varðandi áfrýjun og fleiri hliðar málsins.
Fjölmiðlar Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Innlent Bíll í ljósum logum Innlent Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent Endurræsa vélarnar og bjarga páskunum Innlent Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Fleiri fréttir Endurræsa vélarnar og bjarga páskunum Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Aflýsa hættustigi og rýmingum á Seyðisfirði Opinn fundur í utanríkismálanefnd um ESB atkvæðagreiðslu Burðardýr í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Handtóku mann fyrir að stela dekkjum Sjá meira