Aníta komst ekki í undanúrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. ágúst 2017 19:00 Aníta endaði í 4. sæti í sínum riðli. Vísir/EPA Aníta Hinriksdóttir komst ekki í undanúrslit á HM í frjálsum íþróttum sem fer nú fram í London. Aníta hljóp í riðli 5 og hagur hennar virtist vænkast þegar Eunice Jepkoech Sum frá Kenýu datt út vegna veikinda. Aníta byrjaði hlaupið ágætlega og var í góðri stöðu framan af. En á lokametrunum lokaðist hún inni og endaði í 4. sæti. Hún hefði þurft að enda í þremur efstu sætunum til að komast áfram í undanúrslitin sem fara fram á morgun. Aníta hljóp á 2:03,45 mínútunum. Charlene Lipsey frá Bandaríkjunum kom fyrst í mark í riðli 5 á 2:02,74 mínútunum. Hedda Hynne frá Noregi varð önnur á 2:02,85 og Docus Ajok frá Úganda þriðja á 2:02,98. Riðill Anítu var sá hægasti af riðlunum sex. Þetta er annað heimsmeistaramót fullorðinna sem Aníta keppir á. Hún var einnig á meðal þátttakenda á HM í Peking fyrir tveimur árum en komst ekki áfram í undanúrslit. Fylgst var með hlaupinu í beinni textalýsingu á Vísi. Hana má lesa hér að neðan.
Aníta Hinriksdóttir komst ekki í undanúrslit á HM í frjálsum íþróttum sem fer nú fram í London. Aníta hljóp í riðli 5 og hagur hennar virtist vænkast þegar Eunice Jepkoech Sum frá Kenýu datt út vegna veikinda. Aníta byrjaði hlaupið ágætlega og var í góðri stöðu framan af. En á lokametrunum lokaðist hún inni og endaði í 4. sæti. Hún hefði þurft að enda í þremur efstu sætunum til að komast áfram í undanúrslitin sem fara fram á morgun. Aníta hljóp á 2:03,45 mínútunum. Charlene Lipsey frá Bandaríkjunum kom fyrst í mark í riðli 5 á 2:02,74 mínútunum. Hedda Hynne frá Noregi varð önnur á 2:02,85 og Docus Ajok frá Úganda þriðja á 2:02,98. Riðill Anítu var sá hægasti af riðlunum sex. Þetta er annað heimsmeistaramót fullorðinna sem Aníta keppir á. Hún var einnig á meðal þátttakenda á HM í Peking fyrir tveimur árum en komst ekki áfram í undanúrslit. Fylgst var með hlaupinu í beinni textalýsingu á Vísi. Hana má lesa hér að neðan.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sara Björk komin heim Fer úr Formúlu 1 yfir í NASCAR Borga tólf milljarða í skaðabætur vegna brota læknis skólans Sara Björk snýr heim í Hauka Komin sjö mánuði á leið en spilar samt á Opna bandaríska FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Sjá meira