Nauðgaði barni 1978, fékk uppreist æru 1995 og reyndi aftur að nauðga barni 2008 Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. september 2017 13:56 Umsókn Ómars um uppreist æru í mars 1995, sautján árum eftir dóm sinn. Þremur vikum síðar féllst forseti Íslands á umsóknina.
Íslenskur karlmaður um sextugt fékk uppreist æru árið 1995 en hann hlaut tveggja og hálfs árs dóm fyrir að nauðga barni árið 1978. Árið 2008, þrettán árum eftir að hann fékk uppreist æru, var hann dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Noregi fyrir tilraun til að nauðga tíu ára stúlku úti í skógi. Athygli vekur að maðurinn virðist ekki hafa framvísað neinum umsögnum með umsókn sinni um uppreist æru. Framvísa þarf tveimur umsögnum valinkunnra aðila með umsókninni. Upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins hefur ekki skýringar á því hvers vegna engar umsagnir fylgdu umsókninni. Maðurinn er einn þeirra 32 sem fengu uppreist æru frá árinu 1995 til dagsins í dag. Dómsmálaráðuneytið veitti fjölmiðlum aðgang að gögnum þeirra sem fengu uppreist æru, 31 karl og ein kona, með þeim takmörkunum að ýmsar persónugreinanlegar upplýsingar og persónulegar upplýsingar voru afmáðar. DV greindi fyrst frá málinu í dag en maðurinn, Ómar Ragnarsson, sótti um uppreist æru árið 1995 í handskrifuðu bréfi. Þar segir: „Frú Vigdís Finnbogadóttir. Forseti Íslands. Ég undirritaður bið yður um uppseinaræru á sakavottorði mínu. Mér hefur verið sagt upp vinnu og erfitt hefur verið að fá atvinnu vegna þessa. Ég er giftur og hef stofnað fjölskyldu. Ég er búsettur …. og þar sem er krafist sakavottorðs, hefur reynst erfitt að fá vinnu hér líka. Hef ég ekki gerst brotlegur gagnvart hegningarlögum síðan 1977.“ Umsókn Ómars barst ráðuneytinu í mars 1995 og skrifaði Vigdís undir umsóknina um þremur vikum síðar. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra skrifaði sömuleiðis undir umsóknina.Frétt Dagblaðsins frá því í desember 1978.Nauðgaði barni Erfitt er að finna gögn er snúa að sakaferli Ómars. Í frétt Dagblaðsins þann 30. desember 1978 segir að Ómar hafi hvað eftir annað verið handtekinn undanfarin misseri fyrir kynferðislega glæpi gagnvart börnum. Hann fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir tvö gróf brot árið 1977 og þriðja broti, sem ekki var talið jafngróft. Var Ómar meðal annars handtekinn í Garðabæ, þar sem hann reyndi að tæla krakka upp í bíl með sælgætisboðum. Fyrir ábendingu eins barnsins var Ómar handtekinn. Játaði hann brot sín og síðar einnig sjö innbrot og innbrotstilraunir í Keflavík, segir í frétt Dagblaðsins. Flutti Ómar síðar til Noregs þar sem hann bjó með konu og börnum. Í nóvember 2008 var hann dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að nauðga tíu ára gamalli stúlku í nálægð við Stavanger í Noregi.Frétt Fréttablaðsins frá því í nóvember 2008.Grímuklæddur í skógi Fjallað var um málið í Fréttablaðinu á sínum tíma og því lýst hvernig Ómar sat grímuklæddur fyrir stúlkunni snemma morguns í skógi á milli tveggja þorpa nærri Stavangri í Noregi. Stúlkan hjólaði þá leið daglega á leið til skóla. Hann hafði um nokkurra daga skeið fylgst með börnum á leið til skóla og komist að raun um að stúlkan var yfirleitt sein á ferð. Fyrir dómi lýsti Ómar því þegar hann stoppaði stúlkuna og sagði: „Sæl vina mín, hvað heitir þú?“ Þá hafi hann beðið hana að koma með sér inn í skóginn. Þegar hún neitaði því dró hann upp hníf, greip fyrir vit stúlkunnar og bar hana inn í skóginn. Þar afklæddi hann stúlkuna. Þegar hann var að klæða sjálfan sig úr buxunum tókst henni að flýja. Stúlkan hljóp fyrst heim til nágranna sinna sem reyndust ekki heima. Þá hljóp hún alla leið heim til sín, um tíu mínútna leið. Fyrir réttinum sagði móðir stúlkunnar hana eiga afar erfitt eftir þessa reynslu. Hún velti því meðal annars stöðugt fyrir sér hvort maðurinn hafi ætlað sér að myrða hana.Sleit öll tengsl við manninn Það tók lögregluna tvær vikur að finna manninn. Hann var fyrst yfirheyrður sem vitni í málinu. Þá sagðist hann ekkert hafa séð óvenjulegt. Lögreglan bar svo kennsl á hann með DNA-sýni á hnífnum sem hann hafði notað, en honum hafði hann týnt í skóginum. Þegar maðurinn var handtekinn fannst barnaklám á heimili hans. Odd Kristian Stokke, blaðamaður hjá Stavanger Aftenposten, fylgdist með réttarhöldunum. Hann sagði Fréttablaðinu að Ómar hefði horft niður mestallan tímann. Auðsýnilegt hafi verið að hann skammaðist sín. Komið hafi þar fram að réttargeðlæknir segði hann ekki veikan á geði. Hann væri hins vegar með óvenjulega lága greindarvísitölu. Þá kom fram að hann hefði sjálfur lent í kynferðislegri misnotkun sem barn. Kona mannsins og barnsmóðir yfirgaf Ómar eftir að dómurinn féll. Þau höfðu búið saman ytra í sautján ár. Hún sagðist í viðtali við DV hafa slitið öllum samskiptum við hann.
Uppreist æru Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Sjá meira