„Við erum gosið! Við erum stormurinn!“ Margrét Helga Erlingsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 25. nóvember 2017 21:52
Fjórar af fórnarlömbum Roberts Downey segja að byltingar á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur hafi hjálpað þeim gríðarlega í að skila skömminni. Þær leiddu saman ljósagöngu UN-Women í dag. Gangan hófst klukkan fimm í dag á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og var gengið frá Arnarhóli upp Amtmannsstíg að Bríetartorgi. Yfirskrift göngunnar var „Höfum hátt“ en þær Anna Katrín Snorradóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jónsdóttir og Nína Rún Bergsdóttir voru kyndilberar göngunnar. Þær komu í dag saman í fyrsta skipti síðan „Höfum hátt“ bylgjan fór af stað í sumar eftir að Robert Downey var veitt uppræst æra af íslenskum stjórnvöldum og fékk lögmannsréttindi sín á ný.Segir Robert aldrei hafa beðist afsökunar „Við fjórar erum fjórar af þeim sem voru beittar kynferðislegu ofbeldi af Robert Downey. Okkur finnst þetta bara óréttlátt að hann skuli hafa fengið þessa uppreistu æru útaf því að hann hefur aldrei sýnt neina iðrun. Hann hefur aldrei beðist afsökunar eða viðurkennt glæp sinn,“ segir Nína Rún Bergsdóttir. Anna Katrín Snorradóttir tók undir með Nínu Rún og bætti við að stuðningur þjóðarinnar hefði hjálpað þeim mikið við að skila skömminni.Konur hópa sig saman og deila sögum Undanfarnar vikur hafa þúsundir kvenna, bæði á Íslandi og um allan heim, tekið þátt í annarri bylgju á samfélagsmiðlum og notast við myllumerkið #metoo eða #églíka þar sem þær segja frá niðurlægjandi og jafnvel ofbeldisfullri framkomu karla. Þá eru það nánast orðnar daglegar fréttir að konur úr hinum ýmsu starfsstéttum hópi sig saman í lokuðum hópi á Facebook og deili sögum af slíkri framkomu sín á milli. Nýjasti hópurinn bættist við í gær en hann var stofnaður utan um konur í fjölmiðlum.Glódís Tara, Halla Ólöf og Anna Katrín Snorradóttir tóku einnig þátt í Druslugöngunni í ár. Anna Katrín segir stuðning þjóðarinnar skipta miklu máli.Mynd/Aníta EldjárnKonurnar sem fara fyrir Höfum hátt byltingunni vilja breyta kerfinu Kyndilberarnir fjórir héldu hugvekju í tilefni af göngunni. Í hugvekjunni kemur fram endreginn vilji kvennanna þess efnis að við eigum ekki að sætta okkur við það kerfi sem við búum við, ekki frekar en kerfis-og kynbundið ofbeldi. Hér að neðan er hægt að lesa hugvekju kvennanna í heild sinni:„Við erum hér út af leyndarmáli sem er ekki lengur leyndarmál. Ég og stelpurnar sem standa mér við hlið, Anna, Glódís og Halla, vorum allar misnotaðar kynferðislega af sama manninum þegar við vorum allar yngri en 17 ára. Af hverju var það leyndarmál? Af því að samfélagið ákvað það. Hrútarnir ákváðu það. Í meira en áratug lá skömmin hjá okkur. Skömm sem leiddi til sjálfsskaða, fíkniefnanotkunar, áfalla-streitu-röskunar og tilraunar til sjálfsvígs - allar flosnuðum við frá námi. Skömm okkar hefur haft ótrúleg áhrif á allt okkar líf. Gerandinn fékk aðeins þriggja ára dóm. Hann sat inni í tvö ár og býr núna í villu á Spáni.Við stóðum upp þegar þessi maður sótti um að fá æru sína uppreista í þeim tilgangi að öðlast lögmannsréttindi sín aftur. Réttindi sem dæmd höfðu verið af honum fyrir að brjóta á okkur. Við gátum ekki lengur þagað. Ljóstra þurfti upp um leyndarmálið. Andmælalaust fékk hann æruna til baka. Það virtist honum eins auðvelt og að fá aðgang að Netflix. Lög og reglur kváðu um að þrátt fyrir að hann hafi aldrei sýnt iðrun yfir því sem hann gerði – aldrei viðurkennt það sem hann gerði – þá treysti samfélagið honum til að gegna starfi þar sem hann á að „efla rétt og hrinda órétti“. Við ákváðum að sækja okkar rétt með því að hafa hátt.Okkur var nefnilega sagt að við ættum að sætta okkur við að svona væri nú bara heimurinn. Svona væri nú bara kerfið. Það er ekki heimur sem við sættum okkur við. Ekki kerfi sem við viljum lifa við. Ekki frekar en annað kerfis- og kynbundið ofbeldi eða þöggun. Okkur var sagt að vera ekki með vesen og fyrirgefa - því nóg hefði verið lagt á aumingja manninn. Þingmaður sakaði okkur um að vera ofbeldishneigðar þegar við báðum um sjálfsagðar upplýsingar. Hann hélt því fram að við vildum berja á þeim sem mæltu með því að brotamanninum væri lyft í yfirburðastöðu í þjóðfélaginu.Fyrir opnum tjöldum fórum við fram á að ráðherrar gæfu okkur svör við því hvernig á öllu þessu stæði. Sumir ráðherrarnir þögðu meðan aðrir neituðu að veita okkur upplýsingar. Svo þegar hið sanna kom í ljós sprakk ríkisstjórnin. Jafnvel þá var haldið áfram að snúa út úr fyrir okkur. Hvers vegna fáum við ekki viðurkenningu á því að okkur var gert erfitt að segja sögu okkar? Hvers vegna siguðu opinberir aðilar starfsmönnum sínum á erlenda fjölmiðla til að ritskoða kvenfrelsissögu Íslands? Enn eru ekki allar upplýsingar um uppreist æru komnar fram. Enn mega iðrunarlausir barnaníðingar sinna lögmannsstörfum. Enn virðast ráðherrar leyndarhyggjunnar ætla að príla upp í stólana sína í ráðuneytunum. Hvernig eigum við að treysta þeim fyrir framtíð okkar og barnanna okkar? Við viljum að þeir í minnsta lagi ávarpi okkur sem jafningja áður en lengra er haldið. Við viljum að kynferðisbrot séu tekin alvarlega og samfélagið komi sér saman um að reisa brotaþola við.Fólk í öllum stjórnmálaflokkum verður fyrir kynferðisofbeldi. Fólk af öllum stéttum verður fyrir kynferðisofbeldi. Hættum að halda með stjórnmálaflokkum eins og fótboltaliðum. Sameinumst um að rétta af kynbundin launamun og stöðvum kynbundið ofbeldi. Hreinsum beinagrindur barinna kvenna út úr skápunum og byrjum upp á nýtt. Vörpum ljósi á tækin og tólin sem notuð eru til að halda okkur niðri. Göngum þá ljósagöngu áfram í hversdagslífinu.Við vitum um fleiri brotaþola sem ekki hafa skilað skömminni og þess vegna höfum við hátt, og við munum hafa hátt þangað til að stjórnarskránni verður breytt og enginn þarf að ganga í gegnum það sama og við höfum þurft að ganga í gegnum. En Höfum Hátt er ekki bara okkar, heldur líka ykkar. Kvenna, karla, mæðra, feðra, systra og bræðra. Nú höfum við tækifæri til að breyta því hvernig samfélagið okkar tekur á kynferðisofbeldi… Hvernig samfélag viljum við fyrir börnin okkar?Við brotnum ekki undan storminum og mótlætinu. Við viljum réttlæti! Við erum gosið! Við erum stormurinn!“
Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Sjá meira