Vilja gera kjötsúpuna að skyndibita ferðamannsins Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2018 15:28 Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri Hjá N1, og Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb, undirrituðu samninginn í dag.
N1 og markaðsstofan Icelandic Lamb undirrituðu í dag samstarfssamning sem innsiglar víðtækt samstarf, vöruþróun og sameiginlegar markaðsaðgerðir til að auka sölu lambakjöts á Nestisstöðvum N1 um allt land. Samkvæmt tilkynningu hefur undirbúningur staði yfir frá því haustið 2017. Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri Hjá N1, og Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb, undirrituðu samninginn í dag. Sérstök áhersla verður lögð á í upphafi að kynna íslenska kjötsúpu sem hollan og aðgengilega íslenskan skyndibita fyrir ferðamenn. Þá verður bæði hægt að borða hana á staðnum eða taka með. „Á næstu vikum og mánuðum bætast við fleiri skyndiréttir úr lambakjöti, m.a. steikarsamloka, lambasnitsel, lamb bearnaise og lamba-hamborgari. Þetta er afrakstur vöruþróunar undanfarinna mánaða þar sem lambakjötið er í aðalhlutverki. Með skírskotun til íslenskra hefða verður einnig boðið upp á hægeldaða lambaskanka með kartöflumús, sósu, rauðkáli og grænum baunum á sunnudögum,“ segir í tilkynningunni. Þar segir enn fremur að fjölgun erlendra ferðamanna hér á landi hafi sett svip á íslenskan skyndibitamarkað og með samstarfinu sé ætlunin að bjóða ferðamönnum að kynnast íslenska lambakjötinu eins og Íslendingar þekki það best. „Um leið á að festa kjötsúpuna í sessi sem ekta íslenskan skyndibita og ómissandi hluta af því að upplifa íslenska matargerð og hefðir. Með því að setja íslenskt lambakjöt í öndvegi sem skyndibita við þjóðveginn vill N1 lágmarka umhverfisfótspor, uppfylla óskir viðskiptavina um hágæða skyndibita, kynna íslenska matarmenningu og taka afstöðu með íslenskum bændum.“ N1 rekur þjónustustöðvar og verslanir um land allt undir merkjum N1 og Nestis. Undanfarin misseri hefur aukin áhersla verið lögð á ferskan og hollan skyndibita úr úrvals hráefni. Íslenskt lambakjöt fellur einkar vel að kröfum N1 vegna sérstöðu sinnar, gæða og hreinleika. N1 og Icelandic Lamb munu sameiginlega vinna að því að markaðssetja íslenska lambið sem hreina náttúruafurð og tilvalin skyndibita fyrir fólk á ferðinni. Markaðsstofan Icelandic Lamb er í eigu Markaðsráðs kindakjöts sem er samstarfsvettvangur Landssamtaka sauðfjárbænda, Landssamtaka sláturleyfishafa og Bændasamtaka íslands. Markaðsstofan rekur herferð gagnvart erlendum ferðamönnum undir sérstöku merki og er í samvinnu við um 150 aðila í veitingarekstri, smásölu, framleiðslu og hönnun sem setja lambakjöt og aðrar íslenskar sauðfjárafurðir í öndvegi.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Sjá meira