Dópaður á stolnum bíl eftir ránsleiðangur í uppsveitum Birgir Olgeirsson skrifar 19. mars 2018 15:55 Maðurinn var stöðvaður við Holtsós undir Eyjafjöllum síðastliðinn miðvikudag að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Landakort ehf
Lögreglumenn á Suðurlandi stöðvuðu ökumann sem reyndist vera undir áhrifum áfengis og vímuefna í stolnum bíl sem var þar að auki fullur af þýfi. Þetta átti sér stað á Suðurlandsvegi við Holtsós undir Eyjafjöllum síðastliðinn miðvikudag að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Í bílnum fannst þýfi sem maðurinn hafði tekið ófrjálsri hendi í uppsveitum Árnes- og í Rangárvallasýslu áður en hann var stöðvaður. Hann gisti fangageymslur á Selfossi til næsta dags enda óviðræðuhæfur vegna ástands síns. Við yfirheyrslur daginn eftir gat hann litlar skýringar gefið á ferðalagi sínu. Bílnum reyndist hann hafa stolið í Reykjavík og númeraplötum í innbroti í tjaldvagnageymslu í Heiðarbæ í Flóahreppi. Á leið þangað hafði hann meðal annars stolið úr bílum ferðamanna við Þingvelli og á Laugarvatni og úr veitingahúsi í uppsveitum. Þaðan lá leiðin meðal annars í íbúðarhús á Rauðalæk þar sem tölvubúnaði ásamt fleiru var stolið, og í bíl við Seljalandsfoss þar sem greiðslukortum ferðamanna var stolið. Kappinn reyndi svo að nota þau í hraðbanka á Selfossi.
Flóahreppur Lögreglumál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira