Skoðun

Hefur Reykjavíkurborg sinnt skyldum sínum?

Kolbrún Baldursdóttir skrifar
Hvað varðar húsnæðismálin hafa borgaryfirvöld ekki sinnt skyldum sínum. Borgaryfirvöld hafa mismunað þegnum sínum eftir stétt og stöðu. Í Reykjavík hefur skort lóðir sem hefur orsakað algjört öngþveiti á fasteignamarkaði. Þúsundir íbúða vantar í borgina til að uppfylla eftirspurn á húsnæði. Almenningur í borginni hefur verið settur út í horn og réttur þeirra til mannsæmandi lífs hefur verið fótum troðinn. Borgin hefur einnig flæmt ýmsa atvinnustarfsemi burt yfir í nágrannasveitarfélögin. Fólkið er einnig að hrekjast burt í leit að búsetu annars staðar. 

Flokkur fólksins vill að undið sé ofan af núverandi okri á lóðasölu borgarinnar. Við viljum gefa einstaklingum og fjölskyldum tækifæri til að kaupa sér lóð og eignast framtíðarheimilið. Flokkur fólksins vill byggja öflugt félagslegt húsnæðiskerfi í samvinnu við ríkið og lífeyrissjóði. 

Friðhelgi og öryggi heimilisins er forsendan fyrir hamingju barnanna okkar. Þróun húsnæðismála hefur komið stórum hópi sérlega illa. Þetta á einkum við um ungt fólk, tekjulága einstaklinga, öryrkja og aðra minnihlutahópa. Á sama tíma og vandinn hefur vaxið hefur ferðamannastraumur til Íslands aukist. Það er einföldun á vandamálinu að fullyrða að húsnæðisvandinn sé auknum ferðamannastraumi að kenna þó það sé hluti vandans. Sannleikurinn er sá að borgaryfirvöld hafa vanrækt þennan málaflokk í mörg ár. Allt of lítið hefur verið byggt af hagkvæmum íbúðum fyrir efnaminni fjölskyldur.



Allir þurfa þak yfir höfuðið. Það fylgir því mikil vanlíðan að hafa ekki öruggan samastað enda um eina af okkar grunnþörfum. Óöryggið hefur gífurleg áhrif á börnin í þessum aðstæðum sem hafa mörg hver átt afar erfitt. Það hefur neikvæð áhrif á sjálfsmynd barna að þurfa að flytja oft. Þau eru ef til vill nýbúin að aðlagast og mynda tengsl þegar þau þurfa að flytja aftur. Það setur að mörgum börnum kvíða og áhyggjur þegar þau hugsa hvort þeim takist að eignast vini á enn einum nýjum stað. Hluti af unga fólkinu okkar sem er að hefja búskap getur kannski treyst á foreldra sína og ættingja. En það geta ekki allir foreldrar hjálpað börnunum sínum því þau eiga kannski nóg með sig. Í öðrum tilfellum eru foreldrar ekki til staðar, búa e.t.v. annars staðar á landinu eða erlendis. Barn sem lifir við þessar aðstæður situr ekki við sama borð og börn sem eiga foreldra í betri efnahagsstöðu. Það ríkir því sannarlega mikill ójöfnuður í borginni hvað þetta varðar. Ójöfnuður sem þessi kemur eins og alltaf verst niður á þeim sem minnst mega sín. Börn þurfa að geta fundið til öryggis í tilveru sinni ef þau eiga að geta vaxið og dafnað áhyggjulaust.

Höfundur skipar 1. sæti Flokks fólksins í Reykjavík. 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×