Að bera velferð barna fyrir brjósti – svarbréf til Kára Líf Magneudóttir skrifar 5. september 2018 13:16 Kæri Kári. Það gleður mig alltaf þegar borgarar taka þátt í opinberri umræðu og láta skoðanir sínar í ljós og gagnrýna störf stjórnmálamanna. Við sem erum í stjórnmálum eigum að vera í virku samtali við fólk um málefni líðandi stundar og þá sérstaklega um jafn mikilvæg mál eins og menntun og lýðheilsu. Lifandi umræða um sósíalisma er líka nauðsynleg til þess að ryðja braut samfélagslegs réttlætis. Ekki veitir af. Vel væri ef fleiri gerðu slíkt hið sama. Að því sögðu finnst mér ærið tilefni til að bregðast við nokkrum atriðum sem komu fram í bréfi þínu og leiðrétta leiðinlegar rangfærslur um skoðanir mínar og viðhorf. Fyrst vil ég taka fram hversu mikilvægt mér þykir að öll börn séu bólusett eins og reglugerðir gera ráð fyrir. Um þetta erum við vitaskuld hjartanlega sammála þó við kunnum að vera ósammála um þær leiðir sem fara á til að tryggja að hjarðónæmi haldist viðunandi og að þorri barna og fólks sé bólusett. Eins og þú bendir á eru mislingar óumdeilanlega hættulegur sjúkdómur og fréttirnar af hækkandi tölum mislingasmita í löndunum í kringum okkur vekja ugg. En, ef við eigum ekki að verða fórnarlömb hræðsluáróðurs, upphrópana og æsifrétta þurfum við að taka til greina faglegt álit sóttvarnalæknis sem hefur lýst því yfir að staða bólusetninga hérlendis, bæði hvað varðar afstöðu fólks til þeirra og þess hversu margir láta í raun og veru bólusetja börnin sín, gefi ekki tilefni til að beita harkalegum aðgerðum á sveitarstjórnarstiginu. Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni kunna ýmsar skýringar að vera á því sem virðist vera lækkandi tíðni bólusetninga barna. Í fyrsta lagi kann að vera að skráning bólusetninga sé ábótavant, og að fleiri börn séu í raun bólusett en opinber tölfræði gefur til kynna. Þá bendir sóttvarnalæknir á að það þurfi að leggja ríkari áherslu á eftirfylgni, fræðslu og upplýsingagjöf til forráðamanna barna og fólks. Fólk af erlendum uppruna sem hingað kemur, t.d. flóttafólk, hefur hugsanlega ekki fengið upplýsingar sem skyldi. Að lokum kann að vera að einhver hópur foreldra sé tortrygginn gagnvart stjórnvöldum og heilbrigðiskerfinu og vilji því ekki láta bólusetja börn sín. En sá hópur er afar fámennur að mati sóttvarnalæknis. Engin þessara vandamála leysum við með einhvers konar bönnum. Mikilvægasta skrefið sem við getum stigið er að fræða foreldra og koma til þeirra upplýsingum um mikilvægi bólusetninga. Boð og bönn geta beinlínis virkað öfugt, og geta hreinlega grafið undan lýðheilsu. Þvingunaraðgerðir geta jafnvel aukið á tortryggni foreldra sem einhverra hluta vegna vilja ekki bólusetja börn sín og fjölgað þeim sem tilheyra þeim hópi. Það væri versta niðurstaðan. Eins og ég tek fram í svörum mínum í Fréttablaðinu er hreint ekki auðvelt að takmarka aðgengi barna að leikskólum. Flækjustigið er miklu meira en virðist við fyrstu sýn. Þar má t.d. nefna mat lögfræðinga Kópavogsbæjar að ekki séu lagaheimildir til staðar til þess að útiloka sum börn frá aðgangi að menntastofnunum á grundvelli ákvarðana eða aðgerðaleysis foreldra þeirra. Það er skýlaus réttur barna að hafa aðgengi að menntun, og það er ein af lögboðnum skyldum sveitarfélaga að veita börnum það. Sveitarfélögin geta ekki brugðist þessari skyldu sinni gagnvart börnunum, jafnvel ekki þótt foreldrar þeirra hafi ekki látið bólusetja þau. Röng ákvörðun foreldra, eða kæruleysi, getur ekki réttlætt að hið opinbera svipti börnin réttinum til menntunar. Þetta er ekki spurning um að einstaklingurinn eigi að leggja á sig „lágmarksfórn til þess að hlúa að hagsmunum samfélagsins“ eins og þú kemst að orði, heldur hvenær það er réttlætanlegt að stjórnvald beiti þvingunarúrræðum og jafnvel svipti fólk, í þessu tilfelli börn, réttindum til þess að aðrir, í þessu tilfelli foreldrar þeirra, færi slíka fórn. Þú talar um „sósíalisma“ í þessu sambandi, en slíkur sósíalismi á meira skylt við eggjakökusósíalisma Stalíns en félagslegt réttlæti, samhygð eða virðingu fyrir fólki og mannhelgi. Í stað þess að snúa upp á hendurnar á fólki, skipa því fyrir og tala yfir hausamótunum á því með yfirlætislegum valdboðum tel ég að það sé alltaf betra að bjóða alla velkomna, opna faðminn, fræða og hjálpa þeim sem þurfa á því að halda. Að úthýsa börnum af leikskólum er ekki í takt við þann sósíalisma sem ég þekki og aðhyllist. Nýtt verklag hefur verið tekið upp til að ráða bót á núverandi stöðu mála. Eins og margítrekað hefur komið fram er reynslan af þessu verklagi enn sem komið er takmörkuð, enda tekur tíma að sjá raunveruleg áhrif af slíkum breytingum. Í stað þess að beita strax hnefunum eða keyra upp hræðslu og tortryggni tel ég að við ættum að sjá hverju þetta nýja verklag skilar og hvort okkur takist ekki með vel yfirveguðum aðgerðum að fjölga bólusettum börnum. Það er skynsamleg nálgun og farsæl, með velferð barna í fyrirrúmi.Líf Magneudóttir er oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í borgarstjórn Reykjavíkur og fyrrum forseti borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Líf Magneudóttir Tengdar fréttir Að bjarga Líf(um) – Opið bréf til borgarfulltrúa VG Ágæta Líf, pólitísk átök í okkar heimi hafa gjarnan staðið um rétt einstaklingsins í samfélaginu annars vegar og skyldur hans hins vegar; til dæmis, hversu mikið á hann að greiða í opinber gjöld og hvað á hann að fá í staðinn? 4. september 2018 07:00 Með og á móti: Eiga bólusetningar að vera skilyrði fyrir inntöku barna á leikskóla? Borgarfulltrúarnir Líf Magneudóttir, Vinstri grænum, og Hildur Björnsdóttir, Sjálfstæðisflokki, rökræða um bólusetningar sem skilyrði fyrir inntöku barna í leikskóla borgarinnar. 1. september 2018 09:00 Mest lesið Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Að bjarga Líf(um) – Opið bréf til borgarfulltrúa VG Ágæta Líf, pólitísk átök í okkar heimi hafa gjarnan staðið um rétt einstaklingsins í samfélaginu annars vegar og skyldur hans hins vegar; til dæmis, hversu mikið á hann að greiða í opinber gjöld og hvað á hann að fá í staðinn? 4. september 2018 07:00
Með og á móti: Eiga bólusetningar að vera skilyrði fyrir inntöku barna á leikskóla? Borgarfulltrúarnir Líf Magneudóttir, Vinstri grænum, og Hildur Björnsdóttir, Sjálfstæðisflokki, rökræða um bólusetningar sem skilyrði fyrir inntöku barna í leikskóla borgarinnar. 1. september 2018 09:00
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun