Tíðarandinn tröllríðandi Hjörleifur Stefánsson skrifar 28. september 2018 07:00 Hvað veldur því að stjórnvöld í Reykjavík sem telja sig vera félagslega sinnuð ganga gegn hagsmunum umbjóðenda sinna æ ofan í æ þegar kemur að skipulags- og byggingarmálum. Borgarstjórn lætur undan þrýstingi braskara og leyfir óafturkræfa eyðileggingu á miðborginni þótt það gangi berlega gegn hagsmunum almennings. Dæmin eru mörg en þær framkvæmdir sem þegar eru hafnar við breytingu Landssímahússins í hótel eru nærtækar. Borgarstjórn leyfði hækkun á húsinu sem þó var til lýta fyrir umhverfið. Síðan heimilaði hún stækkun þess út í austurhluta kirkjugarðsins gamla, sem gengur beinlínis þvert á skýr lög sem banna slíkt. Það eina sem kallar á heimildir af þessu tagi er sýnilegur skammtímagróði húseigandans. Svo seldi hann lóðina og húsið með þeim byggingarrétti sem honum hafði verið úthlutaður og fékk mun hærra verð en hann hefði fengið ef borgarstjórn hefði hafnað ósk hans. Ekki verður séð að borgarstjórn hafi rökstutt þennan gjörning á nokkurn hátt, enda vandséð að það verði gert með tilvísun til hagsmuna almennings. Þegar leitað er skýringar á að borgarstjórn fer svona illa og blygðunarlaust að ráði sínu verður manni það helst til ráða að líta til tíðarandans sem einkennist af græðgi – taumlausri ásókn í allt sem getur gefið af sér gróða. Skeytingarleysi um samfélagsleg sjónarmið og framtíð lands og lýðs einkennir aldarfarið. Tíðarandinn hefur tryllt borgarstjórn sem heggur nú þar sem hlífa skyldi. Þessi tíðarandi tröllríður flestum sviðum samfélagsins. Hann veldur því meðal annars að heilbrigðiskerfið hefur verið holað að innan í nokkra áratugi. Umtalsverður hluti þeirra sérfræðinga sem starfa innan kerfisins lætur tíðarandann kúga sig og vinnur ljóst og leynt að því að bæta persónulegan fjárhag sinn á kostnað þess heilbrigðiskerfis sem ætti að vera þeim keppikefli að hlúa að. Tíðarandinn mótar auðvitað líka stjórnmálamennina og þegar sérfræðingarnir dansa með er augljóst hvert stefnan verður tekin. Einkahagsmundir ríkjandi drifkraftur Á fyrstu áratugum 20. aldar einkenndist tíðarandinn af almennri löngun til að bæta og byggja upp íslenskt samfélag. Stjórnmálaöflin kepptust við að bæta hag landsins. Ungmennafélagshreyfingin um allt land vann ómetanleg störf að framförum á margvíslegum sviðum. Kvenfélögin lyftu hverju grettistakinu á fætur öðru. Hugsjónir um betra samfélag framtíðarinnar var drifkrafturinn. Við lok aldarinnar voru einkahagsmunir orðnir ríkjandi drifkraftur og hugsjónir voru lagstar í dvala. Þessi breyting á aldarfari hefur orðið hægt og bítandi. Við höfum auðvitað hrifist með aldarfarsbreytingu sem orðið hefur víðast hvar, kannski alls staðar, í hinum vestræna heimi. En þó höfum við breyst á sérstakan hátt. Ríkisútvarpið sem átti drjúgan þátt í að efla samkennd með þjóðinni á fyrri hluta 20. aldar hlaut líka að bera tíðarandanum vitni. Það treysti sér ekki þegar á leið til þess að vera sú uppeldisstofnun sem því var ætlað í upphafi að vera. Á síldarárunum flutti Ríkisútvarpið daglega sérstakar fréttir af aflabrögðum síldarflotans í tengslum við aðalfréttatímann og flestar fjölskyldur landsins fylgdust með af spenningi. Almenningur þekkti nöfnin á aflahæstu skipunum og fréttamenn töluðu við skipstjóra þeirra sem hvert mannsbarn þekkti. Einnig fengum við daglegar fréttir af millilandaskipum þjóðarinnar, hvar þau voru stödd og hvenær þau væru væntanleg til landsins. Í byrjun 21. aldar hafði þessum fréttaflutningi verið hætt en nú flutti Ríkisútvarpið okkur daglega fréttir af hlutabréfavísitölum víða um heim. Þeir Íslendingar sem áttu hagsmuna að gæta vegna verðbréfa sinna og sá fjöldi sem hafði hlotið MBA gráðu frá háskóla og skildi hvernig væntingar um gengi verðbréfa gætu ráðið úrslitum um þeirra eigin fjárhag, hlaut að hlusta af andakt. Fréttir af þessu tagi áttu ekkert erindi til almennings en ríkisútvarpið kaus að gerast meðreiðarsveinn útrásarvíkinganna. Sitja með hendur í skauti Þegar samfélag okkar tók að rétta úr kútnum eftir hrunið mikla 2008 var það ekki síst vegna gríðarlegs vaxtar ferðamannaiðnaðarins. Eins og vænta mátti fagna stjórnvöld þessum uppgangi en sitja með hendur í skauti. Þeim nægir að dásama hagvöxtinn og telja hann sér að þakka. Flugfélögin tvö stjórna ferðinni og allar aðgerðir þeirra ráðast af taumlausri ásókn í vöxt. Á meðan þessi bylgja gengur yfir getur stjórn okkar ekki einu sinni séð til þess að ferðamannastraumurinn skili samfélaginu fjármunum til að standa straum af innviðum samfélagsins sem þurfa að eflast með auknum mannfjölda. Þetta er auðvitað öðrum þræði spaugileg þróun en hún er samt grafalvarleg því við erum á hraðri leið með að eyðileggja þann sælustað sem Ísland hefur verið. Til að Ísland verði ákjósanlegt land fyrir afkomendur okkar þarf að efla hér samkennd og samvinnu. Hefja til vegs og virðingar alla viðleitni til þess að bæta samfélagið. Spurningin er því hvernig við getum breytt tíðarandanum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar