Sandgerðingar í sjokki vegna „ógeðslegasta máls sögunnar“ Sigurður Mikael Jónsson skrifar 10. október 2018 06:00 Íbúar Sandgerðis eru slegnir yfir því að málið sem vakið hefur óhug hafi átt sér stað í bænum. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta var ógeðslega mikið sjokk fyrir alla. Þetta er umtalað og margir reiðir,“ segir íbúi í Sandgerði og nágranni hjónanna sem ákærð hafa verið fyrir gróf kynferðisbrot gegn sínum eigin börnum. Fréttablaðið hefur rætt við nágranna og íbúa í Sandgerði sem segja það hafa verið mikið áfall þegar í ljós kom að umrædd fjölskylda byggi í bænum. Málið hefur vakið mikinn óhug síðan það kom upp og innan réttarvörslukerfisins hefur málið jafnvel verið kallað „það ógeðslegasta í sögunni“. Á mánudag birti Landsréttur úrskurði þar sem gæsluvarðhald yfir manninum var framlengt en konan úrskurðuð á ný í gæsluvarðhald en hún var í haldi í tvær vikur þegar málið kom fyrst upp en síðan sleppt. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hjónin voru handtekin í júlí síðastliðnum. Í úrskurðinum koma óhugnanleg atvik málsins fram. Parið er ákært fyrir að hafa nauðgað dóttur konunnar, sem er stjúpdóttir mannsins, og tekið myndir og myndbönd af brotunum fyrr á þessu ári. Þá eru þau ákærð fyrir að hafa veitt henni áfengi og fyrir að hafa framleitt myndefni sem sýndi barnið á kynferðislegan hátt. Systir stúlkunnar, sem hjónin eiga saman, fylgdist samkvæmt ákæru með athæfinu og eru þau ákærð fyrir blygðunarsemisbrot. Stúlkurnar eru báðar yngri en fimmtán ára. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá játaði konan sök að hluta í sumar og var sleppt í kjölfarið úr haldi. Hún bar því við að hafa verið mjög ölvuð þegar nauðgunin átti sér stað og gerði lítið úr sínum hlut. Þegar hins vegar myndbandsupptökur voru skoðaðar, sem fundust á myndavél sem falin var í fataskáp á heimili fólksins í Sandgerði, kom í ljós að þáttur konunnar var mun meiri og tók hún virkan þátt í brotinu að mati ákæruvaldsins. Að sögn nágranna sem Fréttablaðið ræddi við eru margir íbúar Sandgerðis reiðir yfir því að konunni hafi verið sleppt fyrr í sumar. Einn maður sem Fréttablaðið ræddi við sagði það hafa reynst honum mikið áfall þegar hann uppgötvaði að hin óheyrilegu brot hefðu verið framin af fólki frá Sandgerði. „Þetta er náttúrulega alveg hrikalegt. Það er fyrst núna á síðustu sólarhringum sem mér berst til eyrna að þetta sé hérna í Sandgerði. Ég er eiginlega bara svolítið sjokkeraður líka.“ Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins fór lítið fyrir hjónunum í bænum. „Hér í götunni er fullt af börnum, ég er sjálf með börn og þetta er mjög óþægilegt,“ segir nágranni. „Það fór rosalega lítið fyrir þeim. Ég sá þau nánast aldrei, hvorki konuna né manninn. Bara börnin, stundum.“ Hinn ákærði faðir er á sextugsaldri, frá Akranesi og samkvæmt lýsingum sem Fréttablaðið hefur fengið, strangtrúaður einstaklingur. Svo trúaður raunar að samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hætti hann í verkamannavinnu sem hann hafði ráðið sig í á Akranesi eftir aðeins þrjá daga þar sem honum ofbauð svo munnsöfnuður vinnufélaganna. Hin ákærða móðir er á fertugsaldri en leiðir þeirra lágu saman fyrir um áratug í gegnum trúna. Hún er ættuð af Suðurnesjum. Fjölskyldan hafði búið á Akranesi um árabil en í Sandgerði undanfarin misseri. Nágrannar sem Fréttablaðið ræddi við segir lögregluna ekki hafa rætt við neinn nágrannanna í götunni. DV hafði áður greint frá óánægju íbúa með hversu fljótt lögreglan hafi afskrifað þann möguleika að brotið hafi verið gegn fleiri börnum.
Birtist í Fréttablaðinu Lögreglumál Tengdar fréttir Aftur í gæsluvarðhald grunuð um mjög alvarleg brot gegn dætrum sínum Meðal gagna í málinu eru myndbandsupptökur og segir í greinargerð héraðssaksóknara að á þeim megi bæði sjá og heyra að þáttur konunnar í brotunum sé mikill 8. október 2018 16:28 Mest lesið „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Erlent Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Innlent Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Innlent Hátt á þriðju milljón á mánuði Innlent Mótmæli við Austurvöll Innlent Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Innlent Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Innlent „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Innlent Fleiri fréttir Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ „Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Lögsækja Reykjavíkurborg Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Ánægja með Höllu eykst Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Tveir handteknir vegna líkamsárásar og fleiri í tengslum við rán og þjófnað Sjá meira
Aftur í gæsluvarðhald grunuð um mjög alvarleg brot gegn dætrum sínum Meðal gagna í málinu eru myndbandsupptökur og segir í greinargerð héraðssaksóknara að á þeim megi bæði sjá og heyra að þáttur konunnar í brotunum sé mikill 8. október 2018 16:28