Arkitektúr í baðmenningu á Íslandi Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 3. nóvember 2018 09:45 Fulltrúar Basalts og Lavacenter með verðlaun sín. Sunday & White „
Við á Basalt arkitektum vinnum ávallt með hvert og eitt verkefni út frá eðli þess og staðsetningu. Okkar fyrsta verk er að fara á staðinn og kynna okkur staðhætti og menningarsögu viðkomandi staðar. Við leitum fanga í umhverfinu og náttúrunni hverju sinni,“ segir Sigríður Sigþórsdóttir hjá Basalt arkitektum sem tóku við Hönnunarverðlaunum Íslands 2018 fyrir arkitektúr í baðmenningu á Íslandi. „Basalt arkitektar eru tilnefndir fyrir tvö verkefni, Sjóböðin á Húsavík og Retreat Hotel í Bláa lóninu. Þessi verkefni eru í raun mjög ólík að umfangi og allri umgjörð. Það sem þau eiga sameiginlegt er að við nýtum jarðvarmavatn til böðunar og slökunar,“ segir Sigríður sem segir staðsetninguna mjög áhugaverða. Basalt arkitektar fá verðlaun fyrir tvö verkefni, Sjóböðin á Húsavík og Retreat Hotel í Bláa lóninu. „Og sérstakt umhverfi sem við erum að byggja í báðum tilvikum og á sama tíma gjörólík. Við erum að umbreyta náttúru og nánasta umhverfi og leggjum áherslu á að það sé í sátt; í stað átaka verði til leikur sem eykur gæði staðarins; geri hann aðgengilegan og áhugaverðan. Við höfum að leiðarljósi að ekkert jafnast á við íslenska náttúru til að öðlast sálræna endurheimt svo ég vitni í Pál Líndal umhverfissálfræðing,“ segir Sigríður. Í rökstuðningi dómnefndar eru Basalt arkitektar sagðir hafa einstakt lag á að tvinna mannvirki saman við náttúruna. Þeir hafi sýnt gott fordæmi þegar kemur að hönnun baðstaða. Byggingarlistin sé í hæsta gæðaflokki þar sem hvert smáatriði er úthugsað og rými hönnuð af virðingu og látleysi. Bækur Angústúru útgáfu, hönnun Snæfríð Þorsteins og Hildigunnar. Innsýn í ólíka menningarheima Þrjú verkefni hlutu einnig viðurkenningu í gær. Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir tóku við viðurkenningu fyrir bækur í áskrift fyrir Angústúru forlag. „Bækurnar eiga að gefa innsýn í ólíka menningarheima en á sama tíma vildum við halda í mínímalískt útlit,“ segir Snæfríð. „Það var alveg ljóst frá upphafi að serían þyrfti heildarútlit fyrir bókaflokk sem ætti eftir að stækka. Útlitinu er ætlað að hvetja til lestrar og vekja forvitni,“ segir hún. Björn bruggar áfengi úr ávöxtum úr matargámum og vinnur gegn matarsóun. Bruggar áfengi úr ávöxtum Þá tók við viðurkenningu Björn Steinar Blumenstein sem bruggar áfengi úr ávöxtum sem hann sækir í ruslagáma matvöruverslana. Hann gefur fólki aðgang að hönnun eimingartækis til eigin brúks. „Catch of the day byrjaði sem rannsókn á hvernig ég gæti dregið úr matarsóun. Matarsóun er gríðarstórt vandamál á heimsvísu sem á sér stað af mörgum mismunandi ástæðum; vegna útlistgalla, skemmda eða sveiflna á markaði. Áfengir drykkir framleiddir úr aflögu ávöxtum framlengja líftímann óendanlega, því áfengi yfir 23% getur ekki runnið út. Hægt er að framleiða gæðavínanda úr öllum afurðum sem innihalda sykur, og því er vodka með ávaxtakeim tilvalin leið til að gefa ávöxtunum nýtt virði,“ segir Björn Steinar frá og segir Catch of the day nú vera að þróast í vöru tilbúna á markað. Tvö fjölbýlishús í Hafnarfirði eru tengd saman með garði eftir PKdM arkitekta og þykja prýði. Djarfur arkitektúr PKdM arkitektar í samstarfi við Teiknistofuna Storð tóku við viðurkenningu fyrir Norðurbakka. Tvö fjölbýlishús, nálægt gömlu höfninni í Hafnarfirði. Garður tengir húsin tvö saman. „Fjölbýlishúsin á Norðurbakka minna á skipin sem lágu við festar í Hafnarfjarðarhöfn undir lok síðustu aldar, bæði hvað varðar efnisval og form,“ segir í rökstuðningi dómnefndar. „Byggingarnar teygja sig til sjávar eins og tvö skip sem liggja við Hafnarfjarðarbryggju,“ segir Ferdinand hjá PKdM og segir húsin óð til sjávar. Úr Bláa lóninu.
Birtist í Fréttablaðinu Tíska og hönnun Hönnunarverðlaun Íslands Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Lífið Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Lífið Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Lífið Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Lífið Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Fleiri fréttir Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum „Ég er sáttur við það dagsverk“ Glatkistunni lokað Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur Stórstjörnur úr dansheiminum í Tjarnarbíói Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Dularfull glæpasaga fær bókafólk til að klóra sér í kolli Ungfrú Ísland og Hringir Orfeusar og annað slúður með flest verðlaun á Grímunni Frægasti ástarþríhyrningur sögunnar fær nýtt líf Ljóð Lomma reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar Eva Fretheim hlaut Glerlykilinn Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Hildur í aðalhlutverki á Listahátíð í Reykjavík Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Sjá meira
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög