„Dauði Mollie var hræðilegur,“ sagði móðirin í viðtalinu þar sem hún sagði frá því að mörg stungusár höfðu verið á líki dóttur sinnar. Tibbetts var tvítug þegar hún var myrt í sumar af hinum 24 ára gamla Christian Bahena Rivera.
Rivera, mexíkóskur innflytjandi sem hafði dvalið ólöglega í Bandaríkjunum, var sá sem leiddi lögreglu að lokum að líkinu. Í kjölfarið birti Donald Trump Bandaríkjaforseti myndband á Twitter-reikningi sínum þar sem hann notaði morðið til þess að kalla eftir hertri innflytjendalöggjöf í Bandaríkjunum.
Buðu innflytjanda að búa hjá sér eftir morðið
Í kjölfar morðsins á Tibbetts braust út mikil reiði í heimabæ hennar og sáu margir innflytjendur sig knúna til þess að flýja bæinn. Á meðal þeirra var fjölskylda hins sautján ára gamla Ulises Felix. Foreldrar hans höfðu um árabil starfað á sama stað og Rivera en eftir morðið flúðu þau og skildu son sinn eftir sem vildi klára skóla í bænum sem hann hafði búið í alla tíð.Það var sonur Calderwood og yngri bróðir Tibbetts sem kom með tillöguna vitandi að það væri auka herbergi í húsinu. Calderwood segist hafa hugsað til þess hvað dóttir hennar hefði gert í sömu aðstæðum og bauð því Ulises að búa með fjölskyldunni.

Þoldi ekki að heyra Trump nota nafn dóttur sinnar í pólitískum tilgangi
Laura Calderwood, móðir Tibbetts, minnist þess í viðtalinu að hafa fengið símtal frá ríkisstjóra Iowa, repúblikananum Kim Reynolds, sama dag og lík dóttur hennar fannst. Þær grétu saman í símtalinu og þótti Calderwood vænt um þann samhug sem ríkisstjórinn sýndi henni. Hún varð því fyrir vonbrigðum þegar kvað við annan tón í yfirlýsingu frá ríkisstjóranum seinna sama dag.Í yfirlýsingu frá ríkisstjóranum voru stór orð látin falla um innflytjendur og talað um „brotið innflytjandakerfi“. Næsta yfirlýsing var enn harðorðari en sú kom frá forsetanum sjálfum. Móðir Tibbetts segir forsetann aldrei hafa haft samband við sig en ekki látið það aftra sér í því að nýta morð dóttur hennar í pólitískum tilgangi.
pic.twitter.com/wYCNmkkaNR
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) 22 August 2018
„Mollie Tibbetts, mögnuð ung kona, hefur nú verið aðskilin frá fjölskyldu sinni um alla eilífð. Það kom manneskja hingað ólöglega frá Mexíkó og drap hana. Við þurfum múrinn, við þurfum að breyta innflytjendalögum okkar, við þurfum að breyta landamæralögum okkar,“ sagði forsetinn í myndbandinu.
Að sögn fjölskyldunnar var Tibbetts ötull talsmaður þess að taka á móti innflytjendum og flóttamönnum. Hún hafði barist fyrir bættum lífskjörum þeirra sem kæmu til landsins í leit að betra lífi og því þótti foreldrum hennar minning hennar vera vanvirt með þessu útspili stjórnmálamanna.