Hvíldardagur hjá strákunum í München í dag Tómas Þór Þórðarson í München skrifar 15. janúar 2019 09:30 Strákarnir fá aðeins að safna kröftum fyrir loka átökin í dag. vísir/tom
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta frá kærkominn hvíldardag í dag eftir tvo leiki í röð á móti Spáni og Barein en fyrsti sigurinn datt í hús í gær þegar að lærisveinum Arons Kristjánssonar í Barein var pakkað saman með 18 marka mun. Okkar menn hvíla lúin bein á glæsilegu hóteli sínu í München í dag og munu væntanlega fara á einn eða tvo myndbandsfundi þar sem að línurnar verða lagðar fyrir leikinn á móti Japan. Strákarnir hans Dags Sigurðssonar komu verulega á óvart á móti Spáni í gær og sýndu að þeir eru betri en menn halda. Hvíldin er mjög mikilvæg þegar að spilað er svona þétt en næst eiga okkar menn leik klukkan 15.30 á morgun að staðartíma á móti Japan. Þeir fá svo ríflega sólarhrings langa pásu áður en kemur að því sem verður líklega úrslitaleikur um sæti í milliriðli á móti Makedóníu á fimmtudaginn. Makedóníumenn eru ekki jafnheppnir því þeir eiga kvöldleikinn á morgun gegn Spáni og koma svo inn í leikinn á móti Ísland eftir um fimmtán klukkustunda hvíld. Guðmundur Guðmundsson og þrír leikmenn liðsins munu sitja fyrir svörum á blaðamannafundi á liðshótelinu í München en hann hefst klukkan 12.00 að íslenskum tíma og verður lýst beint á Vísi.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Fannst látinn inn á leikvanginum Sport Lætur ekki einn slæman leik hafa áhrif á verkefnið Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 102-98 | Meistararnir töpuðu í Vesturbænum Körfubolti „Var í vímu þarna í smá stund af gleði og æsingi“ Körfubolti Uppgjörið: ÍA - Þór Þ. 102-92 | Gulir og glaðir byrja á sigri Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - ÍR 92-83| Breyttir tímar hjá Keflvíkingum? Körfubolti „Þá er erfitt að spila hér“ Körfubolti „Fannst þetta full mikil brekka“ Körfubolti Dagskráin í dag: Verður Breiðablik loks Íslandsmeistari? Sport Féll á lyfjaprófi á HM íslenska hestsins og missir silfur: „Eins og ég sé glæpamaður“ Sport Fleiri fréttir Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Sjá meira